Fotbolti.net
Er 2-0 hættulegasta staðan í fótbolta? - Tölfræðin tekin fyrir

02.11.26

Er 2-0 hættulegasta staðan í fótbolta? - Tölfræðin tekin fyrir

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Flestir fótboltaáhugamenn muna eftir ótrúlegri lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar árið 2022 þegar Manchester City tók á móti Aston Villa og þurfti á sigri að halda til þess að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Þegar rúmlega 20 mínútur voru eftir kom Philippe Coutinho Aston Villa í 2-0 og virtist titillinn vera að renna úr höndum City manna. Það var hins vegar ekki búið að skrifa síðasta kaflann í þessari ótrúlegu titilbaráttu en City skoraði þrjú mörk á aðeins fimm mínútum og tryggði sér titilinn með 3-2 sigri.

Það er gjarnan talað um að 2-0 sé hættulegasta staðan í fótbolta og hafa margir sparkspekingar og þjálfarar varað við því að slaka á þegar tveggja marka forskoti er náð. En hversu mikil hætta er í raun og veru á því að tapa niður 2-0 forystu og skiptir einhverju máli hvenær liðið kemst tveimur mörkum yfir? Við ætlum að skoða áhugaverða tölfræði úr stærstu deildum Evrópu og nokkrar eftirminnilegar endurkomur.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.