Fotbolti.net
01.11.26 - 19:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"

Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"
Canon

Mynd: EPA

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, var vægast sagt ekki hrifinn af Alexis Mac Allister í 1-0 tapi liðsins gegn Arsenal á Anfield í kvöld.

Noni Madueke var á gulu spjaldi þegar hann fór haus í haus við Mac Allister með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi féll í jörðina við litla snertingu. Madueke slapp án þess að fá áminningu.
„Ég vildi að Liverpool myndi vinna þennan leik en ég er mjög ánægður með það að Madueke var ekki rekinn af velli. Við verðum að gagnrýna hann og segja að þetta sé vandræðalegt," sagði Carragher.

„Þetta er fáránlegt og verður að hætta. Ég get þetta ekki. Ef einhver fer með hausinn til baka og skallar einhvern þá er það rautt. En ef þetta er haus í haus og annar fer niður og hinn er rekinn af velli þá verður þú að gagnrýna þitt fólk."

„Þetta er grín hjá Mac Allister. Þetta verður að hætta. Menn eru að reyna að fá forskot því þeir geta fengið rautt spjald fyrir þetta. Hvort sem það er Howard Webb, enska úrvalsdeildin eða stjórarni sem koma saman, þetta verður að hætta."
Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.