Fotbolti.net
02.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron vorkennir Bruno Fernandes - „Best að hann fari"

Aron vorkennir Bruno Fernandes - „Best að hann fari"
Canon

Mynd: EPA

Aron Jóhannsson, sérfræðingur í Sunnudagsmessunni á SÝN Sport og stuðningsmaður Man Utd, telur að það væri best fyrir Bruno Fernandes að hann yfirgefi félagið.

Aron talaði um það í Sunnudagsmessunni í gær að Fernandes væri klassa fyrir ofan alla leikmenn í liðinu og það væri því ekki nógu góð tengsl milli hans og annarra á velliinum.
„Í langan tíma hef ég vorkennt Bruno fyrir að vera í þessu liði. Ef hann hefði verið í Man City eða Arsenal þá værum við að tala um að hann væri einn af bestu leikmönnum í heimi," sagði Aron.

„Hann er kominn á þann stað, Carrick er ekki að fara ná honum á sitt band. Hann er ekki að fara ná kraftinum sem hann var með í fyrra að ég held. Ég held að það sé best að hann fari eitthvað skemmtilegt í janúar, meira fyrir hann heldur en Man Utd."

Bruno var stórkostlegur á síðustu leiktíð og bætti stoðsendingametið í úrvalsdeildinni en hefur ekki náð sér á strik á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.