02.11.26 - 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Madueke skaut á Mac Allister: Hann reyndi að veiða mig

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Noni Madueke skaut á Alexis Mac Allister í viðtali eftir stórleik Liverpool og Arsenal í gær.
Arsenal vann leikinn en í seinni hálfleik vildu einhverjir leikmenn Liverpool fá rauða spjaldið á Madueke sem er kantmaður Arsenal.
Madueke nuddaði aðeins höfði sínu í Alexis Mac Allister sem féll með tilþrifum. Madueke var með gult spjald og slapp við að fá annað. Mac Allister hafði látið Martin Ödegaard heyra það og Jurrien Timber var ekki ánægður með hegðun Argentínumannsins. Madueke kom svo með seinni skipunum. Þeir Mac Allister og Timber fengu gula spjaldið.

TENGT EFNI
Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"
Fyrrum leikmaður Arsenal, Freddie Ljungberg, spurði Madueke út í atvikið í viðtali á Viaplay.
„Ég hefði átt að gera það," sagði Madueke léttur þegar Ljungberg spurði hvort hann ætlaði sér að skipta á treyju við Mac Allister.
„Mér fannst ekkert í þessu. Dómaranum fannst það ekki. VAR fannst það ekki. Svo við erum allir sammála um það," sagði Madueke sem gagnrýndi svo leiktilburði Liverpool mannsins.
„Þetta er náttúruleg hreyfing. Hann er að reyna vera sniðugur, reyndi að veiða mig í rautt spjald, en náði því ekki. Í augnablikinu hugsaði ég að VAR gæti fengið einhverja niðurstöðu, gæti verið túlkunaratriði og maður veit ekki hvað þeir sem skoða þetta hugsa. En sem betur fer var ekkert í þessu."