01.11.26 - 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hinrik og Breki á skotskónum - Óttar Magnús með tvennu

Mynd: Egersund

Mynd: SPAL

Mynd: Elfsborg

Mynd: Egersund
Júlíus Magnússon var á skotskónum þegar Elfsborg vann 2-1 sigur á Örgryte í efstu deild í Svíþjóð. Hann jafnaði metin á 65. mínútu en Ari Sigurpálsson var tekinn af velli í kjölfarið.
Kolbeinn Þórðarson kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik og var tekinn af velli á 69. mínútu í 1-0 tapi Gautaborgar gegn Hacken. Elfsborg er í 5. sæti með 46 stig eftir 27 umferðir en Gautaborg er í 9. sæti með 38 stig.

Brynjólfur Willumsson lagði upp fyrsta mark leiksins í 3-2 tapi Groningen gegn Sparta Rotterdam í hollensku deildinni. Groningen er í 8. sæti með 15 stig eftir 11 umferðir.
Breki Baxter og Hinrik Harðarson skoruðu í 3-1 sigri Egersund gegn Strommen í næst efstu deild í Noregi en Hinrik klikkaði einnig á vítaspyrnu. Þetta var fyrsta mark Breka fyrir liðið. Breki Baldursson var ónotaður varamaður þegar Asane tapaði 3-1 gegn Haugesund.
Egersund er í 8. sæti með 38 stig eftir 29 umferðir en Asane er íi 15. og næst neðsta sæti með 25 stig og er fallið.
Júlíus Mar Júlíusson kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri Kristiansund gegn Sarpsborg í efstu deild í Noregi. Viðar Ari Jónsson spilaði 73 mínútur í 2-2 jafntefli HamKam gegn KFUM Oslo. Kristiansund er í 15. og næst neðsta sæti með 23 stig, fjórum stigum á eftir HamKam sem er í 13. sæti sem er fyrir ofan fallbaráttuna.
Óttar Magnús Karlsson skoraði tvennu í 5-0 sigri Renate gegn Carpi í ítölsku C-deildinni. Renate er í næst neðsta sæti með átta stig eftir 12 umferðir.
Sigurður Bjartur Hallsson skoraði mark AD Merida í 2-1 tapi gegn Lugo í spænsku C-deildinni. Merida er í 12. sæti með 13 stig eftir 10 umferðir en Lugo er á toppnum.
Tómas Bent Magnússon var tekinn af velli eftir stundafjórðung þegar Hearts tapaði 2-1 gegn Hibernian í undanúrslitum skoska bikarsins.
Sindri Kristinn Ólafsson var í markinu hjá Vasalund sem vann Karlstad 2-1 í sænsku C-deildinni. Vasalund er í 13. sæti með 31 stig þegar ein umferð er eftir. Liðið þarf á sigri að halda í lokaumferðinni til að gulltryggja sér áframhaldandi veru í deildinni.