02.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sveindís best í glæsilegum sigri

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæran leik í 4-1 sigri Angel City gegn Boston Legacy í bandarísku NWSL deildinni í nótt. Boston skapaði fleiri færi í fyrri hálfleik og hélt betur í boltann en staðan var 1-1 að loknum 45 mínútum.
Þá var komið að Sveindísi. Hún lagði upp annað markið á Evelyn Shores sem skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá íslensku landsliðskonunni.
Sveindís bætti síðan þriðja markinu við þegar hún renndi sér á boltann eftir fyrirgjöf og skoraði. Sveindís fær 8.8 í einkunn hjá Flashscore og var maður leiksins.
Angel City er á leið í 8-liða úrslit en liðið situr í 5. sæti með 52 stig fyrir lokaumferðina. Liðið getur í besta falli endað í 3. sæti og versta falli 6. sæti.