01.11.26 - 12:40
Brynjar Ingi Erluson
Aðeins tveir stjórar sem geta snúið gengi Man Utd við

Unai Emery hefur gert vel með Aston Villa

Mynd: EPA

Eddie Howe er án starfs eftir að hafa hætt með Newcastle

Stjórastaða Manchester United er eitt heitasta umræðuefnið meðal fótboltaspekinga á Englandi og telur Jamie Redknapp, sérfræðingur hjá Sky Sports, að aðeins tveir stjórar komi til greina ef Michael Carrick verður rekinn.

TENGT EFNI
Mjög ólíklegt að Carrick verði látinn fara fyrir landsleikjahlé
Carrick var ráðinn til frambúðar hjá United í sumar eftir að hafa tekið tímabundið við liðinu skömmu eftir áramót og komið því í Meistaradeildina.
Þetta tímabil hefur hins vegar farið herfilega af stað og hefur United nú leikið níu leiki í röð án sigurs í öllum keppnum, þar af sjö í ensku úrvalsdeildinni.
United tapaði 2-0 fyrir Chelsea í gær, en Carrick mun að minnsta kosti halda starfi sínu fram að landsleikjahléinu. Fram að því eiga United-menn aðeins tvo leiki eftir, gegn Roma og Aston Villa, en ef illa fer í þeim telur Redknapp að aðeins tveir stjórar komi til greina ef félagið ætlar að snúa blaðinu við.
„Michael Carrick er enn stjóri félagsins og því væri ósanngjarnt að ræða þetta núna. En ef ástandið batnar ekki er óumflýjanlegt að hann missi starfið. Einu stjórarnir sem ég tel geta snúið genginu við eru Unai Emery og Eddie Howe,“ sagði Redknapp.
Emery hefur gert frábæra hluti með Aston Villa undanfarin ár, á meðan Howe náði góðum árangri með Bournemouth og Newcastle áður en hann sagði upp störfum hjá síðarnefnda félaginu eftir síðasta tímabil.
Redknapp hallast þó frekar að Emery en Howe ef Carrick verður látinn taka pokann sinn.
„Allir stjórar hafa sitt egó og allir munu trúa því að þeir geti snúið gengi United við. Þeir munu í fullri alvöru trúa því, en miðað við hæfileika Emery tel ég hann vera þann eina sem ég myndi treysta fyrir þessu verkefni,“ sagði Redknapp í lokin.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |