Fotbolti.net
01.12.05 - 13:40
Elvar Geir Magnússon

Guðfinnur Ómarsson til ÍR (Staðfest)

Guðfinnur Ómarsson til ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Guðfinnur Þórir Ómarsson hefur komist að samkomulagi við 2. deildarlið ÍR og fengið félagaskipti úr Þrótti. Guðfinnur er 23 ára og er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið allstaðar á miðjunni og frammi. Hann hefur tekið þátt í öllum æfingaleikjum ÍR að undanförnu, m.a. gegn FH í gær.
"Virkilega gleðilegt fyrir okkur og vill ég bjóða hann velkominn. Langar líka til að hrósa vinnubrögðum Þróttar í málinu. Mörg lið mættu taka sér þeirra vinnubrögð til fyrirmyndar, allt hefur staðið sem þeir sögðu," sagði Magnús Þór Jónsson, þjálfari ÍR.

Guðfinnur lék aðeins sjö leiki með Þrótti sem féll úr Landsbankadeildinni í sumar. Ljóst er að hann er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir ÍR sem ætlar sér stóra hluti í 2. deildinni næsta sumar eftir mikið basl undanfarin ár. Félagið hyggst styrkja sig enn meira á næstunni.

Annar Þróttari, Erlingur Þór Guðmundsson, hefur verið að æfa með ÍR að undanförnu en hann lék ellefu leiki með Þrótti í Landsbankadeildinni í sumar. Einnig hafa Ari Már Arason og Bjarki Már Flosason úr KS verið að æfa með liðinu.

ÍR mun líklega halda öllum sínum mannskap frá því í sumar og hyggst fá varnarmanninn Val Úlfarsson aftur sem var hjá þeim í láni síðari hluta sumarsins frá Víking. Valur var valinn besti leikmaður tímabilsins hjá ÍR.

Jón Grétar Ólafsson mun leika með liðinu á ný og þá er Gunnar Hilmar Kristinsson á óskalista Breiðhyltinga en hann er uppalinn ÍR-ingur en lék með Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.