01.12.07 - 13:28
Magnús Már Einarsson
Magnús og Jóhann í Grindavík (Staðfest) - Ramsay semur til 2011

Magnús Þormar, Jón Gíslason, Jóhann Helgason og Scott Ramsay við undirskriftina í morgun.

Mynd: Sigurpáll Jóhannsson

Scott Ramsay í leik með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindvíkingar hafa fengið markvörðinn Magnús Þormar frá Stjörnunni og gerði hann tveggja ára samning við félagið í morgun. Jóhann Helgason gerði einnig þriggja ára samning við Grindvíkinga eftir að hafa verið á láni hjá félaginu frá Val í sumar og þá skrifaði Scott Ramsay undir nýjan fjögurra ára samning en hann var valinn besti leikmaðurinn í 1.deild í sumar. Þá hafa Grindvíkingar einnig gert samning við markvarðarþjálfarann Þorstein Magnússon.
Magnús Þormar sem er 23 ára gamall er uppalinn hjá Keflavík en hann lék í sumar með liði Stjörnunnar.
Hann hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu og núna samið við félagið en hann og hinn efnilegi Óskar Pétursson munu berjast um markvarðarstöðuna hjá liðinu. Hvers vegna skyldi Magnús hafa ákveðið að fara í Grindavík.
,,Ég hafði áhuga að spila fyrir klúbbinn. Hef verið undir stjórn Jankó hjá Keflavík áður og er ánægður með það sem hann hefur verið að gera bæði hjá Keflavík áður og síðasta sumar í Grindavík. Svo er staðsetningin hentug þar sem kærasta mín er héðan, dóttir Gunnlaugs formanns UMFG," sagði Magnús við heimasíðu Grindavíkur.
Jóhann Helgason lék með Grindvíkingum 2006 en gekk um haustið til liðs við Val. Hann var í láni hjá Grindavík í sumar og hefur nú aftur gengið til liðs við félagið og gert eins og fyrr segir þriggja ára samning. Jóhann er ánægður með þennan nýja samning.
,,Jú það verður gaman að taka þátt í þessari baráttu með Grindavík," sagði Jóhann.
Scott Ramsay lék frábærlega með Grindvíkingum í sumar og var eins og fyrr segir valinn leikmaður ársins í fyrstu deild í vali fyrirliða og þjálfara. Ramsay skoraði níu mörk í fyrstu deildinni og lagði upp fjöldan allan af mörkum einnig en spennandi verður að sjá þennan 32 ára gamla kantmann að nýju í Landsbankadeildinni næsta sumar.
Fleiri leikmenn eru í sigtinu hjá Grindavík að sögn Jóns Gíslasonar formanns knattspyrnudeildar.
,,Í dag erum við að skrifa undir samning við þrjá góða leikmenn sem við erum mjög ánægðir að halda hjá okkur. Núna erum við að skoða tvo erlenda leikmenn og fáum vonandi niðurstöðu úr því seinna í mánuðinum en einnig erum við með einn íslenskan leikmann í sigtinu. Þannig að það eru þrír til fjórir sem við erum að skoða þessa stundina," sagði Jón.

Heimild: Heimasíða Grindavíkur