Fotbolti.net
01.12.14 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír úr Man City og Liverpool

Simon Mignolet er í markinu.

Simon Mignolet er í markinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City og Liverpool eiga þrjá fulltrúa í liði vikunnar í ensku úrvalsdeildini hjá Garth Crooks á BBC.

Liverpool lagði Stoke 1-0 í fyrradag á meðan Manchester City sigraði Southampton 3-0 á útivelli í gær.

Crooks er hrifinn af markaskorurum helgarinnar en hann velur sjö leikmenn í liðið sem voru á skotskónum.


Markvörður: Simon Mignolet, Liverpool
Mignolet hefur fengið mikla gagnrýni undanfarnar vikur en hann hélt hreinu gegn Stoke.

Varnarmaður: Glen Johnson, Liverpool
Johnson skoraði sigurmark Liverpool gegn Stoke þegar hann sýndi hugrekki með því að kasta sér fram og skalla boltann í netið.

Varnarmaður: Vincent Kompany, Manchester City
Southampton hefur verið í stuði á tímabilinu en leikmenn liðsins komust lítið áleiðis gegn Kompany og félögum.

Varnarmaður: Chris Smalling, Manchester United
Skoraði og hjálpaði Manchester United að halda hreinu gegn Hull.

Varnarmaður: Gael Clichy, Manchester City
Opnaði markareikning sinn hjá City og hjálpaði liðinu að halda hreinu gegn Southampton.

Miðjumaður: Yaya Toure, Manchester City
Toure skoraði með þrumuskoti í sigri City í gær.

Miðjumaður: Leroy Fer QPR
Fer skoraði sitt fyrsta mark fyrir QPR í 3-2 sigrinum á Leicester.

Miðjumaður: Raheem Sterling Liverpool
Sterling var ógnandi allan leikinn í sigri Liverpool á Stoke.

Framherji: Wayne Rooney Manchester United
Skoraði og var frábær í sigri Manchester United á Hull.

Framherji: Harry Kane, Tottenham
Skoraði ekki en var maður leiksins í 2-1 sigrinum á Everton í gær.

Framherji: Danny Welbeck, Arsenal
Tryggði Arsenal 1-0 sigur á WBA á útivelli. Hefur komið sterkur inn í lið Arsenal síðan hann kom frá Manchester United.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Yaya Toure er á miðjunni.

Yaya Toure er á miðjunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Welbeck er í fremstu víglínu.

Welbeck er í fremstu víglínu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.