Man Utd tilbúið að reiða fram stóru seðlana fyrir leikmann Real

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski miðillinn AS segir að enska félagið Manchester United sé tilbúið að leggja fram háa upphæð til að reyna fá Aurelien Tchouameni í sínar raðir. United er sagt á leið í viðræður við Real Madrid um franska landsliðsmanninn á næstu dögum.
Sagt er að spenna fyrir mögulegum skiptum hjá miðjumanninum sé að byggjast upp á Spáni.
Samkvæmt AS verður þetta ekki auðvelt verk fyrir United þar sem Tchouameni ætlar sér að vera áfram á Spáni. Sagt er að Real vilji fá 100 milljónir evra hið minnsta fyrir kappann.

Man Utd hefur einnig verið orðað við Felix Nmecha, Andrey Santos, Ayoub Bouaddi og Sander Berge.
Tchouameni er 26 ára og hefur verið hjá Real síðan 2022. Hann er núna með franska landsliðinu á HM.