Fotbolti.net
07.07.26 - 09:26
Elvar Geir Magnússon

„FIFA að verða leikskóli fyrir trúða“

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Gianni Infantino, forseti FIFA.

Canon

Mynd: EPA

Vinnubrögð og hátterni FIFA hafa verið mikið í umræðunni. Það andar köldu milli UEFA og FIFA en evrópska sambandið hefur gagnrýnt það alþjóðlega harðlega. Spjótin hafa beinst að Gianni Infantino, forseta FIFA.

Infantino hefur verið duglegur við vingast við og þóknast mörgum af valdamiklum mönnum heimsins og ætlaði allt um koll að keyra þegar FIFA aflétti leikbanni bandaríska sóknarmannsins Folarin Balogun eftir afskipti Donald Trump.
UEFA gagnrýnir FIFA harðlega - „Grafið undan trúverðugleika keppninnar“
TENGT EFNI

UEFA gagnrýnir FIFA harðlega - „Grafið undan trúverðugleika keppninnar“

Lars-Christer Olsson, fyrrum framkvæmdastjóri UEFA, sparaði ekki stóru orðin í viðtali við breska ríkisútvarpið.

„Í alvöru talað þarf FIFA að passa sig á því að verða ekki að leikskóla fyrir trúða. Friðarverðlaunin sem voru búin til fyrir Trump voru heimskuleg og sambandið er komið á hættulegar slóðir því það hefur áhrif á reglur leiksins og það sem fótbolti er," segir Olsson.

„Þetta mál er gríðarlega mikilvægt, fótboltinn á ekki að vera leikvöllur fyrir þetta fólk. Þetta setur trúverðugleika íþróttarinnar í hættu. Þetta eru pólitísk afskipti. Auðvitað tengjast íþróttir og pólitík saman með ýmsum hætti en FIFA ætti að vera sterkt í því að gefa skilaboð um að þeir taki ákvarðanirnar og svona ákvarðanir eiga ekki að vera teknar."

„Ég vil sjá aðildarsambönd FIFA taka sterka og skýra afstöðu svo fótboltinn verði ekki að fáránlegum leik sem fólk hlær að. Þetta mót hefur verið vel heppnað á vissan hátt og nú er mikilvægt að allir séu meðvitaðir það sem eftir er af því."
Lars-Christer Olsson.

Lars-Christer Olsson.

Canon

Mynd: EPA

Trump hlaut friðaverðlaun FIFA.

Trump hlaut friðaverðlaun FIFA.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.