Arnar Gunnlaugs um Víkingsliðið: Eiga að mæta kokhraustir til leiks


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjóðandi heitir Víkingar eiga að mæta kokhraustir til leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld hefja Víkingar leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem þeir taka á móti ungversku meisturunum frá Györ. Fyrri leikurinn verður spilaður á Víkingsvellinum og sá síðari fer fram í næstu viku í Ungverjalandi. Þrátt fyrir að Víkingur hafi verið í efri styrkleikaflokki í drættinum vegna góðs gengis síðustu ár í Evrópuleikjum, fékk liðið gífurlega erfiðan drátt en ETO Györ var sterkasti mögulegi andstæðingurinn sem bauðst. Arnar Gunnlaugsson, fyrrum þjálfari Víkings og núverandi landsliðsþjálfari ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda einvígisins.
„Það hefur auðvitað gengið frábærlega hjá Víkingsliðinu sem verður bara sterkara með hverju árinu sem líður. Liðið er bara stútfullt af frábærum leikmönnum og þeirra hafa gert mikið af góðum fjárfestingum í leikmannamálum sem hjálpar mikið á þessum hluta tímabilsins,’’ segir Arnar Gunnlaugsson.
Eftir jafntefli við Breiðablik í fyrstu umferð tók við 14 leikja sigurganga þar sem Víkingur vann öll liðin í Bestu deildinni ásamt því að komast í undanúrslit bikarsins með sigrum á HK og ÍA. Eins og flestir vita fékk liðið loksins fyrsta skell tímabilsins þegar Blikar sigruðu 3-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í leik þar sem Sölvi gerði margar breytingar sem hann varð svo gagnrýndur fyrir.
„Seinast þegar Víkingar fengu skell, sem var gegn Bröndby í fyrra, fóru þeir á svakalegt skrið og töpuðu varla leik þar sem eftir lifði móts og ég vona að það gerist núna eftir tapið gegn Blikum um daginn. Bröndby leikurinn var bara slys sem gerist bara í örfá skipti en ég hef fulla trú á liðinu núna.''
Víkingar hafa farið í mörg erfið Evrópueinvígi en alltaf gefið liðunum alvöru leiki.
„Víkingur hefur gefið öllum stóru liðunum sem þeir hafa mætt alvöru einvígi sem er gott fyrir sjálfstraustið þar sem þú ert að spila við lið í töluvert sterkari deildum en ert að gefa því alvöru leiki. Það er meiri reynsla í liðinu í ár samanborið við þegar liðið hefur verið að spila þessi stóru Evrópueinvígi á síðustu árum. Víkingar eiga bara að mæta kokhraustir til leiks gegn Györ, þeir eru sjóðandi heitir á meðan tímabilið er ekki byrjað hjá þeim í Ungverjalandi. Það sem er gott hjá Víkingi er það að strúktúrinn er alltaf sá sami, sama hvort liðið sé að spila við 4. deildar lið í bikarnum eða í forkeppni Meistaradeildarinnar,’’ segir Arnar Gunnlaugsson.
Fréttin er hluti af pistli sem birtist á áskriftarvef Fótbolta.net þann 5. júlí en hægt er að skrá sig til leiks og fá fría prufuviku með því að smella á pistilinn að neðan.
" target="_blank">Pistillinn í heild sinni
Sjóðandi heitir Víkingar eiga að mæta kokhraustir til leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð







