Fotbolti.net
07.07.26 - 09:42
Kári Snorrason

Simeone vill Salah - Tottenham undirbýr tilboð í Kroupi

Atletico hefur áhuga á Salah.

Atletico hefur áhuga á Salah.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Tottenham undirbýr 85 milljóna punda tilboð í Eli Junior Kroupi, Atletico Madrid vill fá Mo Salah sem arftaka Griezmann og Gilberto Mora er eftirsóttur af evrópskum stórliðum, þar á meðal Liverpool. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Tottenham undirbýr 85 milljóna punda tilboði í franska framherjann (20), þrátt fyrir að Bournemouth hafi ítrekað að leikmaðurinn sé ekki til sölu. (Talksport)

Atletico Madrid vill fá Mohamed Salah (33) í stað Antoine Griezmann (34). Salah er um þessar mundir með egypska landsliðinu á HM. (Fichajes)

Arsenal hefur bætt bakverðinum Aaron Wan-Bissaka (28) leikmanni West Ham og Kongó á lista sinn yfir mögulega arftaka Ben White (27), fari enski landsliðsmaðurinn frá félaginu í sumar. (Teamtalk)

Liverpool hefur bæst í hóp Chelsea og Manchester United, sem hafa áhuga á hollenska kantmanninum Crysencio Summerville (24), leikmanni West Ham. (Caught Offside)

Liverpool og sex önnur stórlið eru orðuð við mexíkóska ungstirnið Gilberto Mora (17), eftir góðar frammistöður hans með Mexíkó á HM. (Teamtalk)

Chelsea ætlar að bjóða enska U19-landsliðsmanninum Jesse Derry (19) nýjan samning til að fæla Bayern Munchen frá því að reyna við hann. (Football Insider)

Úlfarnir hafa áhuga Niko Sigur (22), miðjumanni Hajduk Split, eftir að hann vakti athygli með króatíska landsliðinu á HM. (Sky Sports)

Dani Carvajal (34) gæti gengið til liðs við nýliða Deportivo La Coruna eftir að hafa yfirgefið Real Madrid. (Fichajes)
Kroupi er ekki til sölu.

Kroupi er ekki til sölu.

Canon

Mynd: EPA

Hinn efnilegi Gilberto Mora.

Hinn efnilegi Gilberto Mora.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.