Fotbolti.net
07.07.26 - 09:43
Elvar Geir Magnússon

Maður dagsins á HM - Skipti um ham og lét Bandaríkjamenn líta út eins og börn

Matt Freese tapar boltanum til Charles De Ketelaere.

Matt Freese tapar boltanum til Charles De Ketelaere.

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Nánast öll umræðan eftir 4-1 sigur Belgíu á Bandaríkjunum á HM í nótt tengist Donald Trump, Gianni Infantino og leikbanninu sem var aflétt af Folarin Balogun.

En Charles De Ketelaere á skilið að fá meiri athygli. Þessi áhugaverði leikmaður skoraði fyrstu tvö mörk Belga og lét varnarmenn Bandaríkjanna hreinlega líta út eins og börn.

De Ketelaere lék út úr stöðu sem fremsti maður en hjá félagsliði sínu Atalanta er hann vanur því að leika sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hann er alls ekki þekktur markaskorari þó hann hafi litið út eins og hreinræktuð nía í heimsklassa í leiknum í nótt.
Óréttlætið kveikti bál í Belgum - Dönsuðu Trump dansinn
TENGT EFNI

Óréttlætið kveikti bál í Belgum - Dönsuðu Trump dansinn

De Ketelaere er 25 ára en hann var barnastjarna á sínum tíma og var talinn einn efnilegasti leikmaður heims. AC Milan keypti hann frá Club Brugge og væntingarnar voru gríðarlega miklar. Hann náði því miður ekki að standa undir þeim.

En De Ketelaere hefur þó haldið sér í myndinni hjá belgíska landsliðinu þar sem hann er nú með 34 leiki undir beltinu. Það hefur hinsvegar verið smá bras að finna út úr því hver hans besta staða er og hann hefur oft hlotið mikla gagnrýni frá belgískum stuðningsmönnum og sparkspekingum.

Fyrir leikinn í nótt hafði De Ketelaere aldrei skorað á HM. Hann skipti um ham í þessum leik og skoraði eins og hann hefði aldrei gert annað. Fyrra markið þegar hann kláraði vel eftir sendingu Nicolas Raskin og það seinna þegar hann pakkaði Tim Ream varnarmanni Bandaríkjanna saman og skallaði knöttinn í netið.

Hlutirnir gengu ekki upp hjá De Ketelaere hjá AC Milan og hann var aðeins eitt ár hjá félaginu. Síðan 2023 hefur hann leikið fyrir Atalanta og vann Evrópudeildina með liðinu fyrir tveimur árum.


Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Maður dagsins á HM - Skipti um ham og lét Bandaríkjamenn líta út eins og börn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.