02.01.06 - 17:58
Hafliði Breiðfjörð
Josemi kominn til Villareal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænski varnarmaðurinn Josemi sem hefur verið hjá Liverpool síðan sumarið 2004 er genginn í raðir Villareal á Spáni. Félagaskiptin eru frágengin en Jan Kromcamp leikmaður Villareal fer til Liverpool í skiptum og má búast við að gengið verði frá því á morgun.
Á fréttamannafundi á Spáni í dag sagði Josemi: ,,Ég og fjölskylda mín erum mjög ánægð með að snúa aftur. Ég er þakklátur Villareal fyrir að gefa mér tækifærið."
Josemi var fyrsti leikmaðurinn sem Rafael Benítez keypti til Liverpool sumarið 2004 en hann kom frá Malaga. Honum hefur gengið illa að aðlagast enska boltanum og hefur aðeins leikið sex leiki í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Nú segist hann vera að ganga í raðir eins stærsta félags í Evrópu og virðist ánægður með að vera að hætta á Anfield.
,,Ég fékk ekki öll tækifæri sem ég hafði vonast eftir að fá hjá Liverpool. Nú vil ég ná aftur því formi sem ég sýndi þegar ég var hjá Malaga."
Villareal eru í fjórða sæti spænsku deildarinnar og eru komnir í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem þeir mæta Rangers.
Josemi skrifaði undir fjögurra og hálfsárs samning hjá Villareal. Hann má ekki spila leikina í Meistaradeildinni því hann hefur þegar leikið með Liverpool í keppninni á leiktíðinni.