Fotbolti.net
02.01.07 - 13:44
Andri Fannar Stefánsson

Adel Taarabt til Tottenham (Staðfest)

Adel Taarabt til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa fengið Adel Taarabt að láni frá Lens út tímabilið. Taarabt var gífurlega eftirsóttur af stórliðunum á Englandi en hann er aðeins sautján ára gamall.
Lánssamningurinn gildir eins og áður segir út tímabilið en hann er með möguleika á endanlegum kaupum í vor.

Damien Comolli yfirmaður íþróttamála hjá Tottenham var hæstánægður með að hafa klófest kappann. ,,Adel Taarabt er talinn vera einn efnilegasti leikmaðurinn í Evrópu í sínum aldursflokki og við erum sérstaklega ánægðir með að hafa náð honum á undan hinum stórliðunum."

,,Hann mun vera góð viðbót við hópinn og hann er hluti af þeirri stefnu okkar að sækja bestu ungu leikmennina þegar við horfum til þess að styrkja hópinn í núinu og framtíðinni," sagði Comolli.

Taarabt sem er framliggjandi miðjumaður lék sinn fyrsta leik fyrir Lens á tímabilinu en hann hefur einnig leikið fyrir U16, U17 og U18 landslið Frakklands.

Taarabt sagðist nýlega hafa neitað boðum frá Arsenal og Chelsea en þess má geta að annar leikmaður Lens, 21 árs varnarmaður, Kamil Zayette er á reynslu hjá ónefndu ensku liði.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.