Fotbolti.net
02.01.15 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Ekki lið vikunnar í enska - Szczesny, Matic og Van Persie

Matic hefur verið frábær á tímabilinu en átti afleitan dag í gær.

Matic hefur verið frábær á tímabilinu en átti afleitan dag í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýársdagur í enska boltanum var fullur af áhugaverðum úrslitum og skemmtilegum tilþrifum. En það voru líka menn sem stóðu alls ekki undir væntingum og hér má sjá sérstakt vonbrigðalið umferðarinnar, valið af Caughtoffside.
Markvörður: Wojciech Szczesny (Arsenal)
Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal, átti martraðaleik og gerði mistök í báðum mörkum Southampton.

Hægri bakvörður: Branislav Ivanovic (Chelsea)
Hefur verið frábær á tímabilinu en var í algjöru tjóni gegn Nacer Chadli og félögum í Tottenham.

Miðvörður: Gary Cahill (Chelsea)
Náði engan veginn að ráða við Harry Kane. Fékk á sig víti og var heppinn að fá ekki rautt.

Miðvörður: Per Mertesacker (Arsenal)
Hefur átt erfitt uppdráttar undanfarnar vikur.

Vinstri bakvörður: Leighton Baines (Everton)
Everton gengur illa og tapaði fyrir Hull þar sem Baines átti sök á fyrsta markinu.

Hægri kantur: Kevin Mirallas (Everton)
Tók varla þátt í tapleiknum gegn Hull.

Miðjumaður: Nemanja Matic (Chelsea)
Vanur því að vera í úrvalsliði vikunnar en átti sinn versta leik á tímabilinu þegar Chelsea tapaði fyrir Tottenham.

Miðjumaður: Cheick Tiote (Newcastle United)
Hefur verið það slakur undanfarið að stuðningsmenn Newcastle verða fegnir þegar hann fer í Afríkukeppnina.

Vinstri kantur: Lazar Markovic (Liverpool)
Það gekk ekkert hjá Markovic þegar Liverpool missti niður tveggja marka forystu gegn Leicester.

Sóknarmaður: Robin van Persie (Manchester United)
Hafði afar lítið fram að færa þegar Manchester United gerði jafntefli við Stoke.

Sóknarmaður: Gabriel Agbonlahor (Aston Villa)
Slakastur á vellinum þegar Villa gerði jafntefli við Crystal Palace.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.