Fotbolti.net
02.01.15 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá Tottenham

Harry Kane var hreint frábær.

Harry Kane var hreint frábær.

Canon

Mynd: Getty Images

Jólatörnin í ensku úrvalsdeildinni er að baki og nú birtum við annað úrvalslið vikunnar. Þrátt fyrir leikjaálag og þreytta fætur fengum við víða flott tilþrif á fyrsta degi ársins. Við leitum í raðir Caughtoffside sem setti saman liðið að þessu sinni.

Tottenham á þrjá fulltrúa eftir magnaðan 5-3 sigur gegn Chelsea.


Markvörður: Julian Speroni (Crystal Palace)
Oft á tíðum besti leikmaður Palace og hann sá til þess að liðið byrjaði nýja árið með því að fá stig gegn Aston Villa, 0-0 enduðu leikar.

Hægri bakvörður: Ahmed El Mohamedy (Hull City)
Egypski vængbakvörðurinn Ahmed El Mohamedy kom Hull yfir gegn Everton.

Miðvörður: Ryan Shawcross (Stoke City)
Einn traustasti hafsent deildarinnar og er líka ógnandi upp við mark andstæðingana eins og hann sýndi þegar hann skoraði gegn Manchester United.

Miðvörður: Curtis Davies (Hull City)
Annar fyrirliði sem hjálpaði sínu liði að landa þremur stigum.

Vinstri bakvörður: Jeffrey Schlupp (Leicester City)
Hjálpaði Leicester að jafna gegn Liverpool. Er á leið í Afríkukeppnina með Ganverjum og kvaddi Leicester með stæl.

Hægri kantur: Dusan Tadic (Southampton)
Rétt eins og liðið gekk Tadic í gegnum smá lægð en var þrusuflottur í sigri gegn Arsenal og innsiglaði sigur sinna manna með marki.

Miðjumaður: Nabil Bentaleb (Tottenham Hotspur)
Hafði betur gegn Nemanja Matic og Cesc Fabregas hjá Chelsea.

Miðjumaður: Victor Wanyama (Southampton)
Besti maður vallarins þegar Southampton vann Chelsea.

Vinstri kantur: Nacer Chadli (Tottenham Hotspur)
Leikmaður sem hefur virkilega stigið upp á tímabilinu.

Sóknarmaður: Danny Ings (Burnley)
Enn ein flott frammistaða frá Ings sem gefur Burnley von um að halda sæti sínu í deildinni.

Sóknarmaður: Harry Kane (Tottenham Hotspur)
Ótrúlegur maður. Var magnaður í sigri Tottenham gegn Chelsea. Skoraði tvö mörk og var sífellt ógnandi.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Danny Ings.

Danny Ings.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.