Fotbolti.net
02.01.24 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ásdís Karen: Félagið vill vinna titla og gera mig betri

Auglýsing
Vann deildina þrisvar sinnum með Val og bikarinn einu sinni.

Vann deildina þrisvar sinnum með Val og bikarinn einu sinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þetta kom frekar fljótt, ég heyrði af áhuga í gegnum umboðsmanninn og mér leist strax mjög vel á liðið og allt í kringum það. Eftir nokkra fundi ákvað ég að þetta væri rétta skrefið," sagði Ásdís Karen Halldórsdóttir sem samdi við norska félagið LSK - Lilleström í desember.

Ásdís er uppalin í KR en heldur til Noregs eftir að hafa spilað með Val síðustu fjögur tímabilin.
„Það er margt sem er heillandi, félagið vill þróa leikmenn og gera þá betri. Þjálfarinn er mjög spennandi; gamall norskur landsliðsmaður sem var valinn þjálfari ársins eftir sitt fyrsta tímabil með liðið. Mér fannst hann vilja gera betri hluti á þessu [komandi] tímabili; komast í Meistaradeildina og vinna titil. Mér fannst það góð markmið. Það eru líka mjög spennandi leikmenn; ungir og efnilegir. Umgjörðin er geggjuð, sýndu mér hvernig allir hlutirnir ganga fyrir sig og þetta var allt mjög fagmannlegt og flott. Svo er staðsetningin mjög góð: í Osló."

Markmiðin að vinna titil og þróa leikmenn hljóma vel. „Mér fannst það, að þeir vilji gera mig að betri leikmann, ekki bara vinna titla." Að vinna titilinn er sama markmið og Valur er með á Íslandi.

„Mig langaði í lið sem væri að berjast um titil í sínu landi; vildi vera á toppnum. Ekki bara fara í leiki og sjá hvað gerist. Það ýtir manni líka áfram að vilja vera bestur."

Voru aðrir kostir í stöðunni?

„Já, ég talaði við einhver lið, en þetta var það sem mér leist best á. Það kom til greina að vera áfram hjá Val. Það kitlar auðvitað mjög mikið að klára þetta Meistaradeildarverkefni sem ég hef fulla trú á að stelpurnar geri (á næsta tímabili) af því það mistókst núna í ár. Mig langaði það mjög mikið, en maður gerir það bara seinna."

Var ekki upp á sitt allra besta
Umræðan í sumar var á þá leið að Ásdís væri ekki að spila sinn allra besta leik.

„Ég hef verið sammála því, finn það sjálf og fólk segir það líka við mig. Mér fannst rétta skrefið að prófa eitthvað nýtt og ákveða þá að gefa allt í þetta. Af því maður er í þessu þá langar mig að gefa 100% í þetta."

„Ég átti samtöl áður en ég tók þessa ákvörðun og það voru flestir sammála því að það væri gott skref fyrir mig að fara út og að ég væri alveg með getuna til að sýna mig erlendis."


„Hún er eiginlega alveg eins og við"
Er eitthvað stress að flytja erlendis?

„Það er alltaf smá stress en ég held að það verði ekkert mál."

„Mér líst vel á að búa í Noregi, held þetta sé frekar líkt Íslandi. Ég á norska vinkonu frá tíma mínum í Texas. Hún er eiginlega alveg eins og við. Mér fannst spennandi að þetta væru ekki alltof mikil breyting menningarlega séð."


Hún á að baki einn A-landsleik og hefur verið í nokkrum landsliðshópum. Hugsar hún um landsliðið þegar hún tekur þetta skref til Noregs?

„Klárlega, maður hugsar alltaf um það þegar maður er að taka næsta skref. Ég held að allir hugsi um það þegar þeir eru mikið í þessu. Vonandi hjálpar þetta skref mér í því [að nálgast landsliðið]."

Kúltúrinn lykill að velgengni
Ásdís er heilt yfir mjög ánægð með tímann hjá Val.

„Sérstaklega eftir að ég flutti aftur heim frá Bandaríkjunum þá hefur þetta verið ótrúlega gaman og þroskandi. Ég er mjög þakklát fyrir þennan tíma og hef þroskast mikið með því að spila með öllum þessum góðu leikmönnum og goðsögnum. Ég er þakklát fyrir að hafa prófað það."

„Ég held að lykillinn að velgengninni sé aðallega kúltúrinn. Leikmennirnir búa til kúltúrinn. Þú kemur inn og lærir hvernig á að gera hlutina. Það og karakterarnir bæði í leikmönnunum og þjálfurunum sem skila þessum góða árangri."


Fílar að vera í flæði
Hvernig týpu af leikmanni er LSK að fá í Ásdísi? Hver er hennar besta staða?

„Þetta er spurning sem ég fæ mjög oft og líka í samtölum mínum við félögin, þau eru forvitin. Þetta er líka hluti af því að ég vel LSK, ég fíla að vera í flæði, get auðvitað haldið stöðu ef það þarf, en þjálfarinn talaði um að þetta sé mjög flæðandi. Hann var ekki að fá mig beint í einhverja eina stöðu heldur ætlaði að sjá hvar hann vildi nota mig á vellinum og hvar honum fyndist ég best," sagði Ásdís.
24 ára sóknarsinnaður miðjumaður.

24 ára sóknarsinnaður miðjumaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er spurning sem ég fæ mjög oft og líka í samtölum mínum við félögin

Þetta er spurning sem ég fæ mjög oft og líka í samtölum mínum við félögin

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Á landsliðsæfingu haustið 2022.

Á landsliðsæfingu haustið 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.