Fotbolti.net
02.02.06 - 01:20
Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Henry til Queens Park (Staðfest)

Kjartan Henry í æfingabúningi KR.

Kjartan Henry í æfingabúningi KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kjartan Henry Finnbogason framherji hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Glasgow Celtic í Skotlandi var í fyrradag lánaður til skoska 3. deildar félagsins Queens Park út leiktíðina.
Kjartan Henry hefur verið hjá Celtic í ár eða síðan hann og Theodór Elmar Bjarnason voru seldir til félagsins frá KR en Celtic hafði betur en hollenska félagið Feyenoord um þá drengi á þeim tíma.

Billy Stark yfirþjálfari hjá Queens Park var ánægður með komu Kjartans en hann sagði: ,,Kjartan er öðruvísi leikmaður en við erum með fyrir, hann er stór líkamlega og hár og kemru til okkar sem markaskorari. Við eigum að minnsta kosti 15 leiki eftir á tímabilinu og ég tel að hann sé leikmaður sem getur spilað stóra rullu í þeim."

,,Þetta kemur á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar og ég er nokkuð ánægður. Ég hef líka fengið Mark Cairns, reyndan markvörð og nú hef ég náð að styrkja framlínuna líka með reyndum framherja. Þetta voru þær tvær stöður sem ég var að vonast til að ná að styrkja og við náðum að gera það núna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.