Fotbolti.net
02.02.06 - 23:23
Hafliði Breiðfjörð

Reynir Leósson til Trelleborg (Staðfest)

Reynir Leósson til Trelleborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Varnarmaðurinn sterki, Reynir Leósson, hefur komist að samkomulagi við sænska liðið Trelleborg, sem leikur í næstefstu deild, um að leika með liðinu næstu tvö árin. Reynir sem nýverið skrifaði undir nýjan samning við ÍA var með ákvæði í honum um að ef erlent lið byði honum samning gæti hann farið endurgjaldslaust frá félaginu.
Brotthvarf Reynis er mikil blóðtaka fyrir Skagamenn þar sem Reynir hefur verið einn allra besti leikmaður liðsins undanfarin ár auk þess að vera af mörgum talinn einn besti leikmaður landsins í sinni stöðu.

Reynir, sem er 27 ára, hefur leikið allan sinn feril með Skagamönnum. Hann hefur leikið 98 með Skagamönnum í efstu deild og skorað í þeim 2 mörk. Á þeim árum sem Reynir hefur leikið með meistaraflokki félagsins hefur félagið einu sinni orðið Íslandsmeistari (2001) og tvisvar sinnum bikarmeistari (2000 og 2003)

Heimild: ÍA.is/KIA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.