02.02.07 - 14:00
Andri Fannar Stefánsson
Liverpool fær ungan Paragvæa (Staðfest)

Benitez hefur fengið mikið af ungum og efnilegum strákum til Liverpool.

Mynd: Getty Images

Benitez hefur fengið mikið af ungum og efnilegum strákum til Liverpool.

Mynd: Getty Images
Liverpool hafa tilkynnt kaupin á paragvæska varnarmanninum Ronald Huth en hann er einungis sautján ára gamall. Huth skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en hann kom frá Tacuary FC í heimalandinu.
Þrátt fyrir að vera fæddur í Paragvæ er Huth með ítalskt vegabréf. Hann kláraði félagaskiptin á miðvikudagskvöldið, rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Benitez hefur verið ansi duglegur að fá til sín unga menn í janúar og má til dæmis nefna þá Danielle Padelli, Emiliano Insua og Jordy Brouwer.
Liverpool leika í hádeginu á morgun gegn Everton í nágrannaslagnum í Liverpool og verður án efa hart barist þar.

Heimild: Opinber heimasíða Liverpool