Fotbolti.net
02.02.07 - 16:09
Andri Fannar Stefánsson

15 ára miðjumaður til Tottenham (Staðfest)

15 ára miðjumaður til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa samið við Queens Park Rangers um Dean Parret, fimmtán ára gamlan Englending sem talinn er vera gífurlegt efni. Parret skrifaði undir unglingasamning hjá Tottenham og verðið er talið vera í kringum tvær milljónir punda.
Damien Comolli yfirmaður íþróttamála hjá Tottenham var ánægður með að fá kappann: ,,Dean er einmitt sú gerð af leikmanni sem að við viljum fá í liðið."

,,Hann er virkilega hæfileikaríkur ungur leikmaður sem hefur þá sjaldgæfu samsetningu af hraða, ákveðni og einnig er hann mjög skapandi leikmaður.

Þess má geta að Parret er fimmti landsliðsmaður U-16 ára liðs Englands sem er á mála hjá Tottenham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.