Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 16:04
Kári Snorrason
Mateta mun gangast undir hnéaðgerð - Verður frá í 3-4 mánuði
Viðburðarríkur sólarhringur að baki hjá Mateta.
Viðburðarríkur sólarhringur að baki hjá Mateta.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta mun gangast undir aðgerð á hné í kjölfar þess að hafa fallið á læknisskoðun hjá AC Milan.

Belgíski fótboltablaðamaðurinn Sacha Tavolieri greinir frá tíðindunum og segir að hinn stæðilegi Mateta verði frá keppni í um 3-4 mánuði.

Mateta var hársbreidd frá því að ganga til liðs við ítalska stórveldið en hann fór í læknisskoðun hjá AC Milan í gær.

Félagið ákvað að láta hann í frekari skoðun á hné í kjölfarið. Eftir þá skoðun var greint frá því að ekkert yrði úr skiptunum.

Mateta hefur spilað í gegnum hnémeiðsli á tímabilinu með Crystal Palace. En meiðslin hafa ekki hamlað honum mikið í markaskorun þar sem hann er með átta úrvalsdeildarmörk fyrir Palace.

Crystal Palace var búið að finna arftaka Mateta í Jörgen Strand Larsen, leikmanni Úlfanna, og mun hann ganga til liðs við félagið þrátt fyrir að skipti Mateta gengu ekki í garð.


Athugasemdir
banner
banner