02.03.14 - 11:00
Daníel Freyr Jónsson
Louis van Gaal orðaður við stjórastöðu Man Utd

Louis Van Gaal.

Mynd: Getty Images

Louis Van Gaal.

Mynd: Getty Images
Hollenski landsliðsþjálfarinn Lous Van Gaal er sagður mjög áhugasamur um að taka við Manchester United af David Moyes.
Breska dagblaðið The People greinir frá þessu í sunnudagsblaði sínu, en Moyes er undir mikilli pressu hjá Rauðu Djöflunum eftir arfaslakt gengi í vetur.
Van Gaal lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Hollendinga að Heimsmeistaramótinu loknu í sumar og er hann sagður koma til greina sem arftaki Moyes hjá forráðamönnum United.
Van Gaal á þjálfaraferli sínum stýrt meðal annars Ajax, Barcelona og FC Bayern.