Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Fer yfir atvikið umdeilda í Víkinni - „Gerir í raun allt rétt en best hefði verið að stoppa leikinn strax"
Seinna gula og svo rautt.
Seinna gula og svo rautt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Boltinn í netinu örskömmu síðar.
Boltinn í netinu örskömmu síðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttarar voru ekki sáttir við niðurstöðuna.
Þróttarar voru ekki sáttir við niðurstöðuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar.
Vilhjálmur Alvar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þóroddur Hjaltalín.
Þóroddur Hjaltalín.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur komst aftur yfir strax eftir rauða spjladið og vann að lokum 3-1 og með því mótið.
Víkingur komst aftur yfir strax eftir rauða spjladið og vann að lokum 3-1 og með því mótið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það átti sér ansi athyglisvert atvik sér stað í leik Víkings og Þróttar í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins síðasta miðvikudag. Brynjar Gautur Harðarson fékk að líta rauða spjaldið seint í leiknum þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Miðjumaðurinn fékk sitt fyrra gula spjald á 85. og það seinna þremur mínútum síðar.

„Brynjar fær sitt seinna gula og er rekinn af velli. Braut af sér í skyndisókn Víkinga," skrifaði Kári Snorrason í textalýsingu sinni. Stígur Diljan Þórðarson var á sprettinum upp völlinn og Brynjar Gautu reyndi að stöðva hann áður en hann komst yfir miðlínu. Það tókst ekki.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmdi leikinn og lyfti ekki strax spjöldum eftir brotið heldur veitti hagnað. Víkingar brunuðu upp í skyndisókn og þegar Brynjar Gautur komst aftur í návist við boltann - sem var þá rétt við vítateig Þróttar - stöðvaði Vilhjálmur leikinn og vísaði Brynjari af velli með því að gefa gult og svo rautt. Víkingur fékk óbeina aukaspyrnu á stórhættulegum stað og skoraði upp úr henni.
„Þetta er bara þvæla"
Eftir leik fór Sigurvini Ólafssyni, þjálfara Þróttar, nokkuð mikið niðri fyrir.

„Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu. Ég hef aldrei nokkurn tímann áður séð þetta. Að leikmaður sem er mögulega að fá sitt seinna gula spjald og að leikurinn sé stoppaður við vítateigslínu hjá mér til þess að reka hann út af á meðan boltinn er í leik. Dómarinn hefur tjáð mér að þetta sé einhvers konar regla. Hvað á þessi maður að gera þegar hann er búinn að fá gult og brýtur aftur af sér. Hann veit ekkert að hann sé að fá annað gult spjald, hann er ekkert viss um það. Á hann að labba út af vellinum? Hann er rekinn út af fyrir að hafa áhrif á leikinn af því að hann er mögulega að fá annað gult spjald. Þetta er bara þvæla," sagði Venni.

Vilhjálmur gerði rétt
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, og var hann spurður út í atvikið. Þóroddur dæmdi sjálfur í efstu deild um árabil og dæmdi í Evrópukeppnum. Hvernig er reglan nákvæmlega?

„Reglan er svona (eins og framkvæmdin var). En vinnureglan okkar, og það sem við reynum alltaf að gera, er að ef leikmaður brýtur á gulu spjaldi brýtur af sér með þeim hætti að hann verðskuldar seinna gula spjaldið, þá viljum við stoppa leikinn strax, spilum ekki hagnað einmitt út af þessu. Það er ekkert rosalega langt síðan að reglunni var breytt," segir Þóroddur.

„Segjum að ég sé að dæma leik og leikmaður sem er á gulu spjaldi reynir með öllum hætti að stoppa hraða skyndisókn, honum tekst það ekki, en er ítrekað búinn að reyna það. Ég ákveð að spila hagnað af því maðurinn með boltann er kominn einn í gegn, svo ver markmaðurinn, þrumar fram og leikmaðurinn sem átti að fá seinna gula fær boltann og skorar. Það gengur ekki að leikmaður sem átti ekki að vera inni á vellinum skori mark."

„Villi (Vilhjálmur Alvar) er ekki að gefa leikmanni Þróttar fyrir að stoppa vænlega sókn, heldur fyrir skeytingarlausan (e. reckless) leik og metur það sem seinna gula spjald. Það sem gerist í Víkinni er að hann áttar sig ekki á því að leikmaðurinn sé á gulu spjaldi fyrr en örlítið seinna. Þá er hagnaðurinn farinn að líta það vel út að Vill ákveður að leikurinn haldi áfram. Síðan þegar leikmaður Þróttar sem braut verður aftur aktífur í leiknum, þá verður Villi að stoppa leikinn. Villi gerir í raun allt rétt, en best hefði verið að stoppa leikinn strax og vísa Þróttaranum af velli."


Best að stöðva leikinn strax
Það átti sér stað atvik í stórleik Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem Pedro Neto (Chelsea) renndi sér og tók niður Gabriel Martinelli (Arsenal) sem var á sprettinum úti á kanti á sóknarhelmingi Arsenal. Martinelli féll til jarðar en náði svo að halda hlaupi sínu áfram. Darren England, dómari leiksins, stöðvaði leikinn og vísaði Neto af velli þó að Martinelli hefði verið í álitlegri stöðu.

„Það eru fyrirmæli UEFA, og þó Englendingarnir séu oft öðruvísi en allir aðrir, þá ímynda mér að fyrirmæli til dómara þar, eins og í Evrópu og hjá okkur, séu þannig að það sé ekki spilaður hagnaður nema sóknarmaður sé hreinlega fyrir opnu marki og sé að fara setja hann í markið. Annars stoppum við bara leikinn. Í þessu tilfelli hjá Arsenal á bara of mikið eftir að gerast svo hægt sé að bóka mark. Þá er leikurinn stöðvaður og manninum vísað af velli."

Erfiðustu ákvarðanirnar þegar enginn skilur neitt
Það er til í dæminu að hagnaður sé veittur, mark skorað og svo fari rautt spjald á loft. Það fer eftir alvarleika brotsins. Í atvikinu á Víkingsvelli segir Þóroddur að það hefði getað orðið niðurstaðan, því Vilhjálmur Alvar hafi spjaldað Brynjar fyrir alvarleika brotsins, en ekki fyrir að hafa ætlað að stöðva sóknina.

„Við getum ekki tekið sénsinn með hagnaðinn nema að vera pottþéttir á því að það verði dauðafæri. Eins og ég sagði áðan þá áttaði Villi sig ekki á því að leikmaður Þróttar væri á gulu og því veitti hann hagnaðinn. Þá kemur þessi staða og kannski eðlilega átta menn á vellinum sig ekki á því hvað sé að gerast. Það eru oft erfiðustu ákvarðanirnar sem við tökum, þegar enginn í sveitarfélaginu skilur hvað sé að gerast. Reglan er þannig að dómaranum ber þá að dæma óbeina aukaspyrnu þar sem hann stöðvar leikinn."

„Villi gerir allt rétt, ég skil mjög vel að það komi upp staða þar sem maður man ekki alveg hverjir séu á gulu spjaldi. Í leikjum förum við í dómarateyminu oft yfir það á dauðum punktum hversu margir séu á spjaldi og manni finnst gott að fá frá fjórða dómara þegar mönnum á spjaldi fækkar við skiptingar. Það gerist svo mikið í fótboltaleik og það er erfitt að vera með allt á 100% hreinu nákvæmlega í augnablikinu. Ég ræddi við Villa og hann sagði að þegar hann kveikti á því að leikmaður Þróttar væri á gulu, þá var hagnaðurinn farinn að líta svo ferlega vel út fyrir Víkingana."


Fenguð þið einhverjar fyrirspurnir frá Þrótti eða Víkingum um þetta?

„Nei, ekkert til mín, en ég hefði ekkert orðið hissa þar sem ákvörðunin var umdeild. Villi gerði allt rétt, þegar leikmaðurinn varð aktífur þá varð Villi að stoppa leikinn," segir Þóroddur.
Athugasemdir
banner