02.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Torfi Geir lánaður í Aftureldingu frá Val (Staðfest)

Torfi í leik með Aftureldingu á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding úr annarri deild hefur fengið sóknarmanninn Torfa Geir Hilmarsson að láni frá liði Vals úr Landsbankadeildinni.
Torfi Geir sem er tvítugur var einnig í láni hjá Aftureldingu á síðustu leiktíð en hann skoraði þá þrjú mörk í fjórtán leikjum í annarri deildinni.
Torfi skoraði eitt mark í þremur leikjum með Valsmönnum á Reykjavíkurmótinu í ár og þá hefur hann komið við sögu í þremur leikjum í Lengjubikarnum en nú hefur hann verið lánaður til Aftureldingar.