Hallgrímur Mar: Heimska í mér að taka ekki sama hornið


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson var mjög svekktur með tap KA í úrslitum Lengjubikarsins gegn Val í dag.
„Það er svekkjandi að tapa í vító og fá á sig mark á 90 mínútu, 'rebound' þar sem við náum ekki frákastinu. Það er mjög svekkjandi að tapa þessum leik, við vildum vinna hann og fá bikarinn," sagði Hallgrímur.
Honum fannst þetta ekki sanngjörn úrslit.
„Mér fannst við sterkari aðilinn í leiknum en þeir voru vissulega búnir að liggja aðeins á okkur þarna í lokin en við vorum búnir að díla vel við það. Síðan er það bara eitthvað einbeitingarleysi sem skapar það að þeir fá þetta 'rebound' og skora. Hann fær kannski aðeins of mikinn tíma að munda skotið fyrir utan teig," sagði Hallgrímur.
„Verðskuldað og ekki verðskuldað, ef ég á að meta það út frá leiknum þá fannst mér við eiga sigurinn skilið en við fengum á okkur mark og ég get ekki verið að svekkja mig, ég veit það ekki, ég er svo pirraður."
Hann skoraði mark KA í venjulegum leiktíma úr vítaspyrnu en klikkaði í vítaspyrnukeppninni þar sem Fredrik Schram varði frá honum.
„Ég held að hann hafi bara giskað á að ég myndi skjóta í hitt hornið því ég skaut í hitt í leiknum. Heimska í mér að taka ekki sama hornið, það virkar alltaf í svona mómentum," sagði Hallgrímur.


