Fotbolti.net
02.07.26 - 23:44
Brynjar Ingi Erluson

Minnisvarði um Jota og bróður hans afhjúpaður á Anfield

Minnisvarðinn sem er fyrir utan Anfield

Minnisvarðinn sem er fyrir utan Anfield

Canon

Mynd: Liverpool FC

Enska félagið Liverpool hefur afhjúpað varanlegan minnisvarða um Diogo Jota og bróður hans Andre Silva, sem létust í hræðilegu bílslysi fyrir ári síðan.
Jota var á leið í ferju með bróður sínum, en ferjan átti að flytja hann aftur til Bretlandseyja skömmu eftir að hann hafði gengið að eiga æskuástina sína.

Bifreið þeirra fór út af veginum og voru þeir báðir úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Jota var fastamaður í portúgalska landsliðinu og hafði verið mikilvægur leikmaður Liverpool frá því hann gekk í raðir félagsins frá Wolves fimm árum áður.

Mikil sorg ríkti hjá Liverpool eftir fráfall bræðranna og lögðu fjölmargir stuðningsmenn blóm og bréf fyrir utan Anfield. Liverpool greindi síðar frá því að félagið ætlaði að reisa varanlegan minnisvarða um bræðurna og hefur hann nú verið afhjúpaður, ári eftir að þeir kvöddu þennan heim.

Minnisvarði um Jota og bróður hans afhjúpaður á Anfield
Canon

Mynd: Liverpool FC

Minnisvarði um Jota og bróður hans afhjúpaður á Anfield
Canon

Mynd: Liverpool FC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.