Fotbolti.net
02.07.26 - 17:22
Elvar Geir Magnússon

Markvörður Þórs skoraði frá eigin vallarhelmingi

Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs skoraði frá eigin vallarhelmingi. Sjáðu markið neðst í fréttinni.

Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs skoraði frá eigin vallarhelmingi. Sjáðu markið neðst í fréttinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Klukkan 17 hófst leikur Þórs og KR í 13. umferð Bestu deildar karla. Þegar þetta er skrifað er botnlið Þórs 3-0 yfir í leiknum eftir ótrúlega atburðarás á Akureyri.

1-0: Þór komst yfir eftir eina mínútu
Þór tók forystuna eftir aðeins eina mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði. „Þórsarar senda boltann upp hægri kantinn og Finnur Tómas bíður eftir honum. Ágúst setur pressu á Finn sem á arfaslaka sendingu til baka framhjá Sigurpáli í markinu og í stöngina. Ágúst hélt áfram hlaupinu og hirti frákastið einn í heiminum og renndi honum í markið," skrifaði Sigurður Bibbi sem textalýsir leiknum hér á Fótbolta.net.

2-0: Mark beint úr horni
Eftir tíu mínútna leik skoraði svo Þór aftur og komst í 2-0. Það mark kom beint úr hornspyrnu. „Horn frá vinstri. Einar snýr boltanum inn að marki og yfir Sigurpál."

3-0: Markvörður Þórs skoraði! - SJÁÐU MARKIÐ NEÐST Í FRÉTTINNI
Þremur mínútum síðar skoraði Þór aftur og nú var það markvörðurinn Aron Stefán Birkisson sem skoraði beint úr aukaspyrnu frá eigin vallarhelmingi. Boltinn flaug yfir allan völlinn og yfir Sigurpál markvörð KR.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR ákvað að gera markvarðaskipti eftir 3-2 tap gegn KR í síðustu umferð. Halldór Snær Georgsson situr á bekknum en Sigurpáll Sören er í markinu og hefur átt sannkallaðan martraðarleik, þurft að sækja boltann þrívegis úr netinu.
Víðir Sig: Fjórði markvörðurinn sem skorar - Ögmundur skoraði átta - Ráðherrann með tvö
TENGT EFNI

Víðir Sig: Fjórði markvörðurinn sem skorar - Ögmundur skoraði átta - Ráðherrann með tvö

Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
Óskar spurður út í markvarðaskiptin
KR kallaði Sigurpál til baka úr láni frá Ægi í apríl eftir að Arnar Freyr Ólafsson meiddist.

„Palli er búinn að æfa vel og verið góður á æfingum. Hann er aðeins öðruvísi markvörður en Dóri og tilvalið að breyta þar til," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson við Sýn fyrir leikinn gegn Þór þegar hann var spurður út í markvarðaskiptin.

Óskar gerði þrjár aðrar breytingar á byrjunarliðinu. Þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Ástbjörn Þórðarson og Amin Cosic fóru á bekkinn. Inn í liðið komu þeir Galdur Guðmundsson, Gabríel Hrannar Eyjólfsson og Sigurður Breki Kárason.

„Galdur kemur inn fyrir Amin. Það er ekkert leyndarmál að Amin er líklega á förum frá okkur og það þarf að taka við keflinu af honum," segir Óskar.

Farðu í beina textalýsingu frá leiknum

Ágúst Hlynsson kom Þór yfir eftir mínútu leik,

Ágúst Hlynsson kom Þór yfir eftir mínútu leik,

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurpáll Sören hefur átt martraðarleik.

Sigurpáll Sören hefur átt martraðarleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.