Fotbolti.net
02.07.26 - 22:13
Elvar Geir Magnússon

Aron markvörður og markaskorari: Skrítin tilfinning

Auglýsing
Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, komst í dag í fámennan hóp markvarða sem hafa skorað í efstu deild karla.

Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, komst í dag í fámennan hóp markvarða sem hafa skorað í efstu deild karla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, komst í dag í fámennan hóp markvarða sem hafa skorað í efstu deild karla. Hann skoraði úr aukaspyrnu af eigin vallarhelmingi sem sveif yfir allan völlinn og endaði í marki KR.

Hann kom Þór í 3-0 í leiknum en átti síðan eftir að sækja boltann þrisvar í eigið net og 3-3 enduðu leikar.
Markvörður Þórs skoraði frá eigin vallarhelmingi
TENGT EFNI

Markvörður Þórs skoraði frá eigin vallarhelmingi

Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
„Ég er mjög svekktur að við höfum ekki náð að klára þetta en er stoltur af strákunum fyrir byrjunina. Það var hugur í mönnum og orka og ákvæðni, eitthvað sem hefur pínu vantað," segir Aron Birkir.

Aron segir að Sigurður Höskuldsson þjálfari hafi lagt upp með að reyna að byrja með vindi og vindurinn spilaði inn í markið sem Aron skoraði. Þá hafi verið rætt um að reyna að láta vaða af markið af löngu færi.

„Ég sá að boltinn var á fínum stað til að prófa þetta með vindinum. Ég bara tók sénsinn. Það er skrítin tilfinning að hafa skorað, þetta var lélegt fagn en tilfinningin skemmtileg."

Í sjónvarpinu hér að ofan er nánar rætt við Aron um leikinn og stöðu Þórs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.