Gæti sett markaðinn á hliðina

Elliot Anderson var seldur til Man City fyrir 116 milljónir punda

Mynd: EPA

Sandro Tonali mun kosta Tottenham 100 milljónir

Mynd: EPA

Dortmund vill núna fá 103 milljónir fyrir Nmecha

Síðustu dagar hafa verið mjög furðulegir þegar það kemur að miðjumannamarkaðnum. Tottenham er að greiða 185 milljónir punda fyrir tvo leikmenn og þá keypti Manchester City enska landsliðsmanninn Elliot Anderson fyrir 116 milljónir, en hvaða áhrif mun þetta hafa á markaðinn í sumar?
Blaðamaðurinn Sebastian Stafford-Bloor veltir þessu fyrir sér í pistli sem birtist á Athletic í dag.
Tottenham hefur staðfest kaupin á Portúgalanum Mateus Fernandes frá West Ham fyrir 85 milljónir punda. Um er að ræða metkaup hjá félaginu, en Tottenham gæti slegið eigið met aftur á næstu dögum með komu Sandro Tonali frá Newcastle United. Heildarupphæðin í þeim viðskiptum er talin nema um 100 milljónum punda.
Manchester City hefur þá staðfest kaup á Elliot Anderson frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda. Það gerir hann að þriðja dýrasta leikmanni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og dýrasta Englendingi allra tíma.
Einn heitasti bitinn á markaðnum er Felix Nmecha hjá Borussia Dortmund. Samkvæmt heimildum Athletic er hann nú verðmetinn á 103 milljónir punda, en heimildarmaður miðilsins með góð tengsl við Dortmund segir að félagið horfi meðal annars til kaupverðsins á Anderson þegar verðmiðinn á Nmecha er metinn.
Manchester United er eitt margra félaga sem hafa skoðað Nmecha.
„Að segja að leikmaður sé X mikils virði er eitt, en það þýðir ekki sjálfkrafa að hann sé það. Skilyrðin eru ólík í öllum viðræðum, þannig af hverju ætti ég að samþykkja að mæta því verði án þess að fá skýr rök fyrir því, nema auðvitað ef ég neyðist til þess?
„Maður verður að horfa á samanburð við aðra leikmenn sem upphafspunkt. Svo veltur það á öðrum þáttum hversu mikið vægi verðmiði á öðrum leikmönnum hefur. Hversu mikil er þörfin hjá mér? Verð ég að fá þennan leikmann eða get ég fundið annan kost í stöðuna? Hafa önnur félög áhuga? Ef svo er, hversu sterk eru þau á markaðnum? Og að lokum: þarf ég að fá þennan leikmann núna?
„Þetta miðast allt við að seljandi félagsins sé ekki undir pressu. Hvað ef leikmaðurinn vill fara og er farinn að skapa vandamál?“ sagði ónefndur fyrrum yfirmaður íþróttamála hjá félagi í ensku úrvalsdeildinni.
Þrír öflugir miðjumenn eru því horfnir af markaðnum á skömmum tíma og framboðið hefur minnkað. Það gæti gert seljandi félögum auðveldara fyrir að hækka kröfur sínar.
Enzo Fernandez, Adam Wharton og Nmecha eru meðal þeirra nafna sem hafa reglulega verið nefnd í umræðunni. Spurningin er hvað slíkir leikmenn kosta núna þegar viðmiðin á markaðnum hafa hækkað.
„Félagaskiptin sjálf hafa áhrif, en afleiðingarnar gera það líka. Slík kaup setja ákveðið viðmið í verðmati. Þá fara félög að einbeita sér að öðrum leikmönnum og svo bætist tímapressan við, þar sem undirbúningstímabilið er að hefjast. Það breytir því hversu tilbúin félög eru að mæta þeim verðmiðum sem hafa þegar verið settir annars staðar,“ sagði fyrrum stjórnandinn hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.