Fotbolti.net
02.07.26 - 23:13
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo leggur landsliðsskóna á hilluna eftir HM - „Njótið á meðan þið getið“

Ronaldo leggur landsliðsskóna á hilluna eftir HM - „Njótið á meðan þið getið“
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo mun leggja landsliðsskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið, en þetta segir Katia Aveiro, systir stjörnunnar, í viðtali við SportTV.
Byrjunarlið Króatíu og Portúgals: Ronaldo byrjar - Leao inn fyrir Felix
TENGT EFNI

Byrjunarlið Króatíu og Portúgals: Ronaldo byrjar - Leao inn fyrir Felix

Það er svo sem ekkert leyndarmál enda hafa fjölmiðlar hafa fjallað um þetta síðasta árið.

Ronaldo er 41 árs gamall og leikjahæsti leikmaður í sögu portúgalska landsliðsins, en þetta er síðasti sénsinn hans til að vinna heimsmeistaratitilinn.

Hvernig sem fer mun hann leggja landsliðsskóna á hilluna eftir mótið, en halda áfram að spila með félagsliði. Markmið hans er enn að ná þúsund mörkum á ferlinum.

„Njótið á meðan þið getið því þetta er bráðlega á enda. Miðað við upplýsingarnar sem ég er með, og það er mjög traust heimild, þá er þetta síðasti dansinn,“ sagði systir hans við SportTV.

Ronaldo vill ekki ljúka landsliðsferlinum alveg strax. Leikur Portúgals og Króatíu í 32-liða úrslitum er hafinn, en sigurvegarinn mætir Evrópumeisturum Spánar í 16-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.