Löglegt mark tekið af Spánverjum? - „Eiga fullan rétt á því að hoppa“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Umdeilt mark var dæmt af Spánverjum gegn Austurríkismönnum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld.
Lamine Yamal tók hornspyrnuna inn á teiginn þar sem Alexander Schlager kýldi boltann frá marki. Hann fór þó ekki lengra en til Marc Cucurella, sem hamraði honum í netið.
Glenn Nyberg, dómari leiksins, var ekki lengi að dæma markið af Spánverjum og stóð sú ákvörðun.
Það virtist þó ekki mikið vera í atvikinu og Kjartan Henry Finnbogason, sem lýsir leiknum með Herði Magnússyni á RÚV, var ekki sammála dómaranum.
„Það er ekkert í þessu, finnst mér. Við fyrstu sýn finnst mér þetta ekki vera brot. Mér finnst þeir eiga fullan rétt á að hoppa og hoppa ekki inn í markvörðinn. Athyglisvert því mér fannst Cubarsi ekki nota hendurnar eða stökkva inn í markmanninn,“ sagði Kjartan Henry í lýsingu á RÚV.
Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikið hér
Stuttu síðar komust Spánverjar í verðskuldaða forystu er Mikel Oyarzabal gerði þriðja mark sitt á mótinu. Það má sjá hér fyrir neðan.

Spain 1-0 Austria - Mikel Oyarzabal 37'
by
u/977x in
soccer