Bournemouth að landa fyrrum framherja Real Madrid - Kroupi á förum?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bournemouth er að styrkja framlínuna en úrúgvæski sóknarmaðurinn Alvaro Rodriguez er að koma til félagsins frá Elche fyrir rúmar 25 milljónir evra.
Rodriguez er 21 árs gamall og uppalinn hjá Real Madrid. Hann á ættir að rekja til Úrúgvæ og hefur þegar ákveðið að leika fyrir landslið Úrúgvæ í framtíðinni.
Hann kom við sögu í átta leikjum með aðalliði Real Madrid tímabilið 2022-23 og skoraði eitt mark. Tækifærunum fækkaði tímabilið á eftir og var hann síðan lánaður til Getafe.
Rodriguez gekk í raðir Elche fyrir síðustu leiktíð og gerði sjö mörk í 36 leikjum. Hann er nú að taka næsta skref og færa sig yfir í ensku úrvalsdeildina, þar sem hann skrifar undir langtímasamning við Bournemouth.
Kaupverðið er talið vera um 25 milljónir evra auk bónusa. Real Madrid fær helminginn af þeirri upphæð, þar sem það setti endursöluákvæði í samning hans þegar hann fór til Elche.
Talið er að Rodriguez sé að koma inn sem mögulegur arftaki franska sóknarmannsins Eli Junior Kroupi, sem hefur verið orðaður við Arsenal, Paris Saint-Germain og Tottenham.

???????? Bournemouth agree deal to sign Álvaro Rodríguez from Elche, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 2, 2026
Club to club and player side in place, fee worth €25m fixed fee plus €5m add-ons.
?????? Real Madrid receive €12.5m as sell-on clause plus €2.5m add-ons.
Deal done - post @MarioCortegana. pic.twitter.com/hhgKjys3oP