Fotbolti.net
02.07.26 - 22:08
Brynjar Ingi Erluson

Óskar Hrafn: Skrítnustu fimmtán mínútur sem ég hef séð

Auglýsing
Óskar Hrafn: Skrítnustu fimmtán mínútur sem ég hef séð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þessar fyrstu fimmtán mínútur leiksins eru þær skrítnustu sem ég hef lent í bæði á stuttum ferli sem leikmaður og sem þjálfari, og hafandi horft á fjölmarga leiki hef ég ekki séð aðra eins hluti gerast hjá sama liðinu á eins stuttum tíma,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 3-3 jafnteflið gegn Þór í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 3 KR
KR-ingar lentu 3-0 undir á innan við fimmtán mínútum á Akureyri, sem kom verulega á óvart.

Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þór yfir eftir slaka sendingu til baka, annað markið kom beint úr hornspyrnu og það þriðja skoraði Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, af eigin vallarhelmingi.

Óskar segir að þrátt fyrir þessa martraðarbyrjun hafi hann verið ánægður með karakterinn sem KR-liðið sýndi.

„Við erum að elta leikinn í 75 mínútur. Þetta var erfitt í fyrri hálfleik, erfiður vindur en lagaðist aðeins í seinni og lægði. Ég veit ekki hvort það hjálpaði Þórsurunum eitthvað en þetta var þolinmæðisvinna. Þegar öllu er á botninn hvolft að hafa lent 3-0 undir er ekki hægt að kvarta yfir því að ná í stig.“

„Undanskildnar þessar fimmtán mínútur voru yfirburðirnir miklir en Þórsararnir voru komnir í 3-0, lögðust niður og reyndu að verjast. Ég er bara ánægður með þetta stig út frá því hvernig leikurinn þróaðist og gríðarlega ánægður með karakterinn. Það hefði verið auðvelt að leggjast niður eftir þessa byrjun en við gerðum það ekki.“

„Þetta er allt lærdómur og höfum ekki lent í þessu áður, en við finnum það og sýnum það að sama hversu ömurleg, erfið og vond staðan er þá getum við alltaf fundið leiðir. Ef þú heldur áfram að leggja þig fram, trúa og treysta á samherja þá er hægt að grafa sig úr holu sama hversu djúp hún er orðin. Það er mikilvægt að hafa það með sér í pokahorninu þegar við förum í seinasta hluta tímabilsins,“
sagði Óskar um leikinn.

Hann fór einnig yfir frammistöðu Sigurpáls Sören Ingólfssonar, sem var að leika sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu, óvæntu markmannsskiptin og margt fleira í spilaranum hér fyrir ofan.

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.