Fotbolti.net
02.07.26 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Króatíu og Portúgals: Ronaldo byrjar - Leao inn fyrir Felix

Cristiano Ronaldo og Pedro Neto eru báðir í byrjunarliðinu

Cristiano Ronaldo og Pedro Neto eru báðir í byrjunarliðinu

Canon

Mynd: EPA

Króatía og Portúgal mætast í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á BMO-leikvanginum í Toronto í Kanada klukkan 23:00 í kvöld.
Það verða mörg augu á þessum leik. Tveir af bestu leikmönnum 21. aldarinnar og fyrrum liðsfélagarnir Cristiano Ronaldo og Luka Modric eigast við.

Þetta er þeirra síðasti séns á að vinna HM og má búast við blóðugri baráttu.

Ronaldo er að sjálfsögðu í byrjunarliði Portúgals, en það er aðeins ein breyting gerð á liðinu. Rafael Leao kemur inn fyrir Joao Felix.

Zlatko Dalic, þjálfari Króatíu, heldur í sama lið og vann Gana í lokaumferð riðlakeppninnar. Josko Gvardiol og Luka Vuskovic eru því áfram á bekknum.

Króatía: Livakovic; Stanisic, Pongracic, Sutalo; Kovacic, Modric, Vlasic, Baturina, Sucic; Perisic, Budimir.

Portúgal: Costa; Cancelo, Dias, Veiga, Mendes; Fernandes, Neves, Vitinha; Leao, Neto, Ronaldo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.