Oliver líklega brotinn - „Svekkjandi að missa hann í langtímameiðsli"
Auglýsing

Oliver Heiðarsson meiddist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur var stoltur af KA liðinu í dag og segir að liðið ætli að halda áfram á þessari braut.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Heiðarsson meiddist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er grátlegt tap, við erum allir svekktir núna. Mér fannst við standa okkur ótrúlega vel," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir naumt tap gegn toppliði Víkings.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KA
„Þetta er það KA lið sem ég veit að býr í okkur. Eftir allt sem á undan er gengið spiluðum við frábæran leik. Já, ótrúlega svekktur og fannst við eiga skilið að fá meira úr leiknum. Þetta er langbesta lið Íslands og ef við getum komið með þessa frammistöðu í framhaldinu þá bíða okkar góðir tímar."
Frammistaða KA var góð í dag en staðreyndin er engu að síður sú að liðið hefur tapað sex leikjum í röð. Hefur Hallgrímur áhyggjur af eigin stöðu?
„Nei, ég hef ekki áhyggjur af eigin stöðu. Maður er bara svekktur, við erum sárir að vera þarna. Stjórn KA veit nákvæmlega hvaða mann ég hef að geyma og hvernig þjálfari ég er. Ef þeir telja einhvern annan vera betri í stöðuna þá er það bara þeirra ákvörðun. En við höfum staðið saman og þeir hafa staðið við bakið á mér undanfarin ár, bæði þegar gengur vel og illa."
Oliver Heiðarsson fór meiddur af velli undir lok leiks. Ljóst er að hann verður frá í langan tíma.
„Svo er svekkjandi að missa Oliver í langtímameiðsli, ég held að hann hafi brotnað áðan. Mér sýnist hann hafa brotið sama bein og hann braut fyrir nokkrum árum, metatarsus, en ég er ekki alveg viss. Hann er því miður frá í langan tíma," sagði Hallgrímur um meiðslin.