Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 02. apríl 2023 12:12
Aksentije Milisic
Holland: Willum spilaði allan leikinn í jafntefli gegn Ajax
Mynd: Go Ahead Eagles

Go Ahead Eagles 0-0 Ajax

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði GA Eagles í dag þegar liðið mætti stórliði Ajax í hollensku deildinni.


Ajax er í öðru sæti deildarinnar með jafn mörg stig og PSV sem situr í því þriðja en Feyenoord er með fimm stiga forskot á toppnum og með einn leik til góða. Willum og félagar eru ellefta sætinu.

Leiknum í dag lauk með markalausu jafntefli en Willum fékk fína dóma fyrir frammistöðu sína. Ajax náði að koma boltanum í netið í fyrri hálfleiknum þegar Mohammed Kudus skallaði boltann í netið en hann var hins vegar flaggaður rangstæður.

Ajax var meira með boltann og stýrði leiknum eins og gefur að skilja en náði ekki að skapa sér mikið af dauðafærum. GA Eagles fékk einnig sína sénsa en að lokum var ekkert mark skorað og því mjög gott stig staðreynd hjá heimamönnum.

Willum spilaði allan leikinn fyrir GA Eagles í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner