Fotbolti.net
15.09.26 - 06:45
Fótbolti.net

Einn tippari með 128 milljónir

Einn tippari með 128 milljónir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enski getraunaseðillinn reyndist tippurum erfiður um helgina og settu fimm jafntefli á seðlinum strik í reikning margra. Enda fór það svo að aðeins einn sænskur tippari var með alla leikina 13 rétta. Alltaf þegar aðeins einn tippari er með alla leikina rétta fær hann tryggðar í sinn hlut 10 milljónir sænskra króna eða um 129 milljónir íslenskra króna.

Einn íslenskur tippari var með 13 rétta á Sunnudagsseðlinum og fær hann í sinn hlut 1.2 milljónir króna en vinningurinn skiptist á milli hans og 46 tippara úr Svíþjóð.

Íslenski tipparinn keypti seðil þar sem hann tvítryggði 4 leiki og setti eitt merki á 9 leiki. Alls var seðillinn 32 raðir og kostaði 416 krónur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.