Fotbolti.net
15.09.26 - 08:30
Sverrir Örn Einarsson

Sá þriðji yngsti eftirsóttur

Guðmundur með föður sínum og ömmu á heimavelli Nordsjæland

Guðmundur með föður sínum og ömmu á heimavelli Nordsjæland

Canon

Mynd: Aðsend

Guðmundur Brynjar Wehmeier, fjórtán ára strákur úr 4. flokki Vals, varð á dögunum þriðji yngsti leikmaður efstu deildar er hann kom inn á í leik Vals gegn Þór en á leikdegi var drengurinn 14 ára og 232 daga gamall.
Þriðji yngstur í sögu efstu deildar
TENGT EFNI

Þriðji yngstur í sögu efstu deildar

Guðmundur sem þykir mikið efni kom til Vals frá liði ÍR en hann eyddi barnæskunni í Breiðholti á æskuslóðum foreldra sinna sem hafa litað mannlífið þar um nokkurt skeið.

Guðmundur er sonur hjónana Arne Karls Wehmeier og Katrínar Ýrar en bæði eiga þau frekar tengingu við handbolta en fótbolta en hafa öðru fremur þótt einir hörðustu iðnaðarmenn landsins síðustu ár en Arne er málari á meðan Katrín er blikksmíðameistari.

Guðmundur Brynjar hefur vakið athygli liða erlendis vegna framgöngu sinnar með Val en hann hefur gert hvorki meira né minna en 99 mörk í 85 leikjum með 2. til 4. flokk Vals.

Sem fyrr segir hefur framganga hans vakið athygli erlendis en hann var á dögunum til reynslu hjá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjæland auk þess sem stórlið á borð við Ajax, Dortmund, og Anderlecht hafa öll haft leikmanninn á sínum radar,

Líklegt má því teljast að þessi ungi og efnilegi leikmaður muni stíga skref erlendis er hann nær 16 ára aldri og bara spurning hvar hann endar enda áhuginn á kröftum hans talsverður.
Guðmundur með átrúnaðargoðinu Albert Guðmundssyni

Guðmundur með átrúnaðargoðinu Albert Guðmundssyni

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.