15.09.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Don Arteta er að verða að Sir Alex"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher hefur líkt Mikel Arteta, þjálfara Englandsmeistara Arsenal, við Sir Alex Ferguson eftir ummæli Spánverjans í kjölfar sigurs gegn Sunderland um helgina.

TENGT EFNI
Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð
Arsenal vann leikinn 0-2 en í stöðunni 0-0 fengu heimamenn í Sunderland dæmda vítaspyrnu. Arteta er gríðarlega ósáttur með vítaspyrnudóminn og hefur gagnrýnt ákvörðunina afar harðlega. Á fréttamannafundi eftir lokaflautið í Sunderland hélt reiður Arteta áfram að tala um dóminn þó hann væri spurður ótengdra spurninga.
Ferguson var óhræddur við að gagnrýna lélegar dómaraákvarðanir á langri dvöl sinni í Manchester og voru margir sem töldu dómara vera hrædda við að dæma í óhag Man Utd til að fá ekki hárblásarann frá Sir Alex í fjölmiðlum eftir leik.
Arsenal fékk ekki dæmda eina einustu vítaspyrnu á sig er liðið varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð og fékk Arteta viðurnefnið 'don' Arteta. Tímabilið áður hafði hann verið afar duglegur að kvarta hástöfum undan dómgæslunni.
„Þetta var Mikel Arteta að verða að Sir Alex Ferguson núverandi úrvalsdeildartímabils," sagði Carragher eftir að viðtal við Arteta var spilað í mánudagsuppgjöri Sky Sports.
„Hann er 'don' Arteta þessa stundina, hann er ríkjandi meistari í úrvalsdeildinni og fólk hlustar á hann. Það er mikið af nýjum þjálfurum í deildinni á meðan hann er búinn að vera í sínu hlutverki í sex eða sjö ár. Honum líður eins og hann sé með nógu mikil völd til að segja að þetta sé ekki víti og að fólk muni taka mark á því. Ég er persónulega sammála honum, mér fannst þetta ekki vera vítaspyrna.
„Það verður samt áhugavert að sjá hversu langt mun líða þar til annar úrvalsdeildardómari dæmir vítaspyrnu gegn Arsenal fyrir svipað brot.
„Mér fannst fréttamannafundurinn hans áhugaverður, einn fréttamaðurinn spurði hvers vegna Arteta væri að snúa hverri einustu spurningu yfir í að tala um vítadóminn. Það var augljóst hvað hann vildi að umtalsefnið yrði. Hann mun gera allt í sínu valdi til að þetta gerist ekki aftur fyrir liðið hans.
„Hann er að hugsa um félagið sitt. Þetta er eitthvað sem Sir Alex gerði óspart og José Mourinho sömuleiðis."
Rob Edwards, fyrrum þjálfari Luton og Wolves, var með í sjónvarpsverinu og tók undir orð Jamie Carragher.

Arsenal óskar eftir útskýringu á því af hverju vítið var dæmt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA