Fotbolti.net
15.09.26 - 09:51
Kári Snorrason

Richarlison furðar sig á frystingunni - „Hvers vegna?“

Fær ekki að spila með Tottenham.

Fær ekki að spila með Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Richarlison hefur tekið til máls á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann bregst við ummælum Roberto De Zerbi um að hann verði ekki framar í leikmannahópi liðsins.

Richarlison hefur staðið í rifrildum við Tottenham eftir að hafa viljað yfirgefa félagið í sumar og segist De Zerbi ekki vilja blanda sér frekar í þær deilur.
Richarlison fær ekki að spila í deildabikarnum
TENGT EFNI

Richarlison fær ekki að spila í deildabikarnum

Brasilíumaðurinn deildi færslu frá félagaskiptablaðamanninum Fabrizio Romano, þar sem haft var eftir De Zerbi að Richarlison myndi ekki leika framar með liðinu í neinni keppni. Við færsluna skrifaði hann einfaldlega: „Hvers vegna?“ og lét fýlukall fylgja með.

Richarlison er ekki skráður í úrvalsdeildarhóp Tottenham og fær heldur ekki tækifæri í deildabikarnum þar sem Tottenham mætir Liverpool í kvöld.


Richarlison furðar sig á frystingunni - „Hvers vegna?“
Canon

Mynd: Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.