Fotbolti.net
15.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

ÍA Íslandsmeistari í þriðja flokki

ÍA Íslandsmeistari í þriðja flokki
Canon

Mynd: ÍA

Þriðji flokkur karla hjá ÍA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með eina umferð eftir óspilaða þegar strákarnir lögðu Breiðablik að velli á sunnudaginn.
ÍA vann leikinn 3-2 og mætir Blikum svo aftur í bikarúrslitaleik laugardaginn 3. október á Skaganum. Skagastrákar unnu einnig ReyCup í sumar.

Lokaleikur deildartímabilsins fer fram á fimmtudaginn í Vesturbæ á útivelli gegn KR og taka strákarnir á móti Íslandsmeistarabikarnum eftir leikslok þar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.