15.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
KSÍ hvetur félög til að sækja um styrk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hvetur íslensk fótboltafélög til að sækja um styrk til að stofna til fótboltatengdra verkefna sem styðja við samfélagslega aðlögun flóttamanna og hælisleitenda. KSÍ hefur ákveðið að seinka umsóknarfresti til fimmtudagsins 17. september. Allt að

TENGT EFNI
KSÍ og Keflavík hljóta styrk úr flóttamannasjóð UEFA
Af vefsíðu KSÍ:
Aðildarsamböndum UEFA býðst að sækja um styrk í sérstakan sjóð vegna knattspyrnutengdra verkefna sem tengjast flóttafólki og hælisleitendum. Með sjóðnum, sem settur var á laggirnar árið 2017, eru knattspyrnusambönd í Evrópu hvött til að starfa með knattspyrnufélögum, samtökum eða öðrum aðilum sem starfa að málefnum flóttamanna og hælisleitenda í sínum löndum og stofna til knattspyrnutengdra verkefna sem styðja við samfélagslega aðlögun þeirra.
Hægt er að sækja um styrk fyrir ný verkefni, eða verkefni sem þegar eru hafin. Ekki er hægt að sækja um styrk fyrir verkefni sem er lokið. Hvert knattspyrnusamband / aðildarland UEFA getur sent eina umsókn. Upphæð styrksins getur numið allt að 40.000 evrum.
Samtök eða aðrir aðilar hérlendis sem þegar starfa að málefnum flóttafólks eða hælisleitenda, og vinna að yfirstandandi verkefnum eða hefðu áhuga á að stofna til nýrra verkefna í samstarfi við KSÍ, eru hvött til að hafa samband við Sóleyju Guðmundsdóttur, grasrótarstjóra KSÍ ([email protected]). Umsóknir þurfa að berast KSÍ eigi síðar en 14. september. Berist fleiri en ein umsókn mun KSÍ skipa valnefnd. Þeirri umsókn sem verður fyrir valinu þarf að skila frá KSÍ til UEFA eigi síðar en 25. september.
Valnefnd UEFA, sem skipuð er fulltrúum UEFA og ýmsum sérfræðingum í málefnum flóttafólks og hælisleitenda, mun meta umsóknirnar og velja þau verkefni sem hljóta styrk.

Heimild: KSÍ

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð