Fotbolti.net
14.09.26 - 19:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tikkar í 74. og síðasta boxið á Víkingsvelli í kvöld

Hildur Lilja og faðir hennar Ágúst Gylfason á Víkingsvelli í kvöld.

Hildur Lilja og faðir hennar Ágúst Gylfason á Víkingsvelli í kvöld.

Canon

Mynd: Hildur Lilja

Hildur Lilja Ágústsdóttir (2003) varð fyrir því óláni fyrir rúmu ári síðan að slíta krossband en hún er leikmaður HK.

Í vor tók hún ákvörðun að sjá leiki hjá öllum 74 liðunum sem taka þátt í Íslandsmótinu karlamegin; allt frá liðunum í Bestu deildinni og niður í 5. deild.

Hún tikkar í síðasta boxið í kvöld þegar hún sér topplið Bestu deildarinnar, Víking, spila á móti Keflavík í Bestu deildinni.
„Ég setti mér markmið að sjá leik hjá öllum karlaliðum í öllum deildum. Ég vildi setja mér eitthvað markmið tengt fótboltanum í sumar. Ég var bara eitthvað að læra, fékk þessa hugmynd og fór að skrá þetta niður í stað þess að læra" segir Hildur Lilja. Hún er dóttir fótboltaþjálfarans Ágústs Gylfasonar.

„Ég sleit krossband í fyrra og með því var tekinn frá mér einn mikilvægasti parturinn í lífinu; fótboltinn. Ég vildi halda boltanum ennþá í lífi mínu, er alin upp í kringum karlaboltann með pabba, elska fótbolta og þar sem ég fékk ekki að spila sjálf ákvað ég að gera eitthvað skemmtilegt úr sumrinu og fara á allavega einn leik hjá hverju liði. Þetta eru 74 lið."

„Þetta hefur gengið vel, ég byrjaði á að fara á leiki sem ég sá að væru þann daginn, en svo fattaði ég að þyrfti aðeins að fara púsla þessu svo ég þyrfti ekki að fara út á land til að fara á einhverja leiki. Ég skrifaði þetta því niður í dagatal til að ná þeim öllum. Það hefur bara gengið vel, á eitt lið eftir og það er Víkingur sem ég sé spila í kvöld. Maður þarf að enda á toppnum."


Er einhver leikur sem hefur verið flóknari en annar að komast á?

„Þegar ég fór að púsla þessu saman þá kíkti ég á KFS og þeir áttu eftir fimm leiki, þar af fjóra heimaleiki í Vestmannaeyjum og einn á Ísafirði. Ég skellti mér því bara ein til Eyja um Verslunarmannahelgina, horfði á leikinn og fór svo bara til baka."

Þú hefur ekki tekið Þjóðhátíð alla leið? „Nei, ég fór bara á fimmtudeginum til Eyja og til baka strax eftir leik."

Er einhver leikur sem óvænt hefur staðið upp úr út af skemmtanagildi?

„Ég fór á laugardaginn á Þróttur Vogum - Magni. Það var skemmtilegur leikur, Þróttur varð að vinna til að halda sér uppi, alvöru stemning í stúkunni. Í neðri deildunum er eiginlega meiri ástríða, því neðar sem maður fer því meiri ástríða er einhvern veginn. Þetta er bæði inn á vellinum og í stúkunni. Það er svo mikil barátta, tæklingar fljúga. Gæðin eru minni, en mér hefur eiginlega alltaf fundist skemmtilegra að horfa á neðri deildarinnar og það svona vakti líka áhugann á því að gera þetta."

„Ég fór á þrjá bikarleiki með Aftureldingu, sá þá vinna Stjörnuna, Fylki í vító og svo bikarúrslitaleikinn gegn Breiðabliki. Það var skemmtilegt að vera með á þeirri vegferð."


Hildur Lilja er í HK og er því stuðningsmaður HK. „Ég er stuðningsmaður HK, en það er líka mikill Fjölnismaður í mér. Ég myndi svo líka segja að það hafi smá tenging myndast við Aftureldingu, „underdog" í bikarnum sem komst alla leið í úrslitin. Ég hélt með þeim í öllum leikjunum."

Fyrir utan Vestmannaeyjar var lengsta ferðalagið frá höfuðborgarsvæðinu á Akranes en Hildur sá ÍA spila á móti Þór fyrr í sumar.

„Ég fór á fjóra leiki hjá Aftureldingu í sumar, ég fór líka á þrjá leiki hjá nokkrum liðum, m.a. Vængjum Júpíters."

Hildur Lilja er búin að sjá 73 af 74 karlaliðum í Íslandsmótinu spila og kvennamegin horfði hún á leiki hjá hennar eigin liði, HK. „Þetta endar í kvöld í 52 leikjum karlamegin. Ég fór á fyrsta leik 12. apríl, KR-Keflavík. Nú er síðasti leikur, 14. september - í kvöld."

„Ég skráði niður öll liðin og alla leikina sem ég fór á. Ég tók mynd á öllum leikjum sem ég hef farið á, verð með 52 myndir af alls konar völlum."


Er einhver völlur sem hefur komið þér á óvart?

„Það eru alveg nokkrir sem ég hafði ekki farið á áður, allt bara svipaðir vellir. Umgjörðin er auðvitað allt öðruvísi í 5. deild og í Bestu deildinni. Allt týpískir fótboltavellir í grunninn."

Hildur Lilja segir að eins og gefi að skilja hafi einhverjir leikir verið skemmtilegri en aðrir. „Það kemur enginn leikur upp sem sá versti, en ætli svona mesta stemningin hafi ekki verið á leik með KR, þeir skora endalaust af mörkum og fá endalaust af mörkum á sig. KR leikirnir eru skemmtilegir, hugsunin var að reyna fara á flesta með KR, en það endaði ekki alveg þannig. "

Hvernig er staðan á þér varðandi meiðslin?

„Hún er loksins orðin fín núna, það er orðið ár síðan ég fór í aðgerð. Á blaði ætti ég kannski að vera byrjuð að spila fótbolta aftur, en það var bakslag á leiðinni. Ég er komin í sendingar, er byrjuð að kíkja aftur á æfingar. Markmiðið er að vera með á fullu á undirbúningstímabilinu og spila næsta tímabil."

Ferðu ein á völlinn, eða nærðu alltaf að fá einhvern með þér?

„Ég fór lítið ein á völlinn, ég reyndi að gera þetta svolítið félagslegt, fara á völlinn með einhverjum í staðinn fyrir að sitja heima yfir sjónvarpinu. Ég vildi skella mér á völlinn og taka alls konar fólk með mér. Ég tók pabba með mér, svo var kærastinn með á flestum leikjum og ég fékk frænkur mínar og vinkonur stundum með."

Voru einhvers staðar veitingar sem komu á óvart?

„Ég er lítið í því að kaupa mér eitthvað á leiknum og tók því ekki eftir því, en börgerinn í Kórnum klikkar ekki."
Sá KFS spila á móti Þorláki í Vestmannaeyjum.

Sá KFS spila á móti Þorláki í Vestmannaeyjum.

Canon

Mynd: Hildur Lilja

Kíkti á Vogaídýfuvöllinn um liðna helgi og sá Þrótt halda sér uppi í 2. deild.

Kíkti á Vogaídýfuvöllinn um liðna helgi og sá Þrótt halda sér uppi í 2. deild.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Víkingsvöllur er staðurinn í kvöld.

Víkingsvöllur er staðurinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sá þrjá leiki með Aftureldingu í bikarnum og hélt með liðinu í keppninni.

Sá þrjá leiki með Aftureldingu í bikarnum og hélt með liðinu í keppninni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Bikarúrslitaleikurinn var sá þriðji sem Hildur Lilja sá með Aftureldingu í bikarnum.

Bikarúrslitaleikurinn var sá þriðji sem Hildur Lilja sá með Aftureldingu í bikarnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Feðginin, Hildur Lilja og Ágúst árið 2015.

Feðginin, Hildur Lilja og Ágúst árið 2015.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.