Fotbolti.net
15.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fálkatemjari Benfica handtekinn í stóru fíkniefnamáli

Fálkatemjari Benfica handtekinn í stóru fíkniefnamáli
Canon

Mynd: EPA

Portúgalskir fjölmiðlar segja að lögreglan þar í landi sé búin að handtaka Joao Paulo Santos, sem situr í fangageymslu.
Fuglatemjari Lazio rekinn fyrir að birta typpamyndir
TENGT EFNI

Fuglatemjari Lazio rekinn fyrir að birta typpamyndir

Santos er 46 ára gamall og er annar fálkatemjaranna sem komu að þjálfun Vitória, frægum fálka portúgalska stórveldisins Benfica.

Hann er handtekinn vegna gruns um aðild að kókaíninnflutningsmáli. Hann starfaði á flugvellinum í Lissabon með fálkann sinn til að hræða burt smáfugla en er talinn hafa nýtt stöðu sína til að taka frá sérstakar töskur áður en þær fóru í gegnum skoðun.

Lögreglan í Portúgal hefur verið með málið til rannsóknar síðustu fjóra mánuði. Hún telur að glæpasamtökum hafi tekist að smygla inn verulegu magni fíkniefna frá Suður-Ameríku með aðstoð frá flugvallarstarfsfólki.

Rannsóknin er enn í gangi og handsamaði lögreglan annan mann á sama tíma og Santos var færður í varðhald.

Til gamans má geta að Santos starfaði eitt sinn með Juan Bernabé hjá Benfica. Bernabé færði sig seinna meir til Lazio á Ítalíu en var rekinn úr starfi í fyrra fyrir að birta óviðeigandi myndir af sér eftir aðgerð á viðkvæmum stað.
Fálkatemjari Benfica handtekinn í stóru fíkniefnamáli
Canon

Mynd: EPA

Fálkatemjari Benfica handtekinn í stóru fíkniefnamáli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.