Fotbolti.net
15.09.26 - 08:20
Elvar Geir Magnússon

Vilja Madueke lánaðan - Wanner orðaður við Liverpool

Noni Madueke.

Noni Madueke.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Evrópsk stórlið fylgjast með leikmanni Arsenal, Liverpool er í hópi félaga sem hafa áhuga á ungum miðjumanni PSV og Lazio íhugar að fá Mauro Icardi. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.
Atlético Madrid og Juventus íhuga að reyna að fá sóknarleikmanninn Noni Madueke (24) lánaðan frá Arsenal í janúar. Hann hefur verið í aukahlutverki í upphafi móts. (Caught Offside)

Liverpool, Bayern München og Real Madrid hafa öll áhuga á að styrkja miðjuna með austurríska landsliðsmanninum Paul Wanner (20) sem leikur með PSV Eindhoven. (Teamtalk)

Lazio hefur hafið viðræður að nýju við argentínska sóknarmanninn Mauro Icardi (33) sem er án félags eftir að hafa yfirgefið Galatasaray. Hann er opinn fyrir möguleikanum. (Sky Sports Ítalía)

Everton hefur einnig verið orðað við Icardi en David Moyes, stjóri liðsins, er tregur til að fá til sín félagslausa leikmenn. (Football Insider)

Crystal Palace stefnir á að gera nýjan langtímasamning við enska markvörðinn Dean Henderson (29). (The Athletic)

Nottingham Forest mun fá sóknarmanninn Michael Noonan (18) frá Shamrock Rovers í janúar. (Irish Mirror)

Inter í Mílanó á í viðræðum um að framlengja samninga ítalska vinstri kantmannsins Federico Dimarco (28) og tyrkneska miðjumannsins Hakan Calhanoglu (32). (Football Italia)

Karim Benzema (38) hefur rætt við leikmenn Bayer Leverkusen þar sem hann leitar sér að nýju félagi eftir að hafa yfirgefið Al-Hilal í sumar. (Fichajes)
Paul Wanner.

Paul Wanner.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.