Fotbolti.net
15.09.26 - 06:00
Fótbolti.net

Álftanes leitar að þjálfara fyrir 4. flokk

Meistaraflokkur Álftanes sigraði 4. deildina í sumar og spila því í 3. deild á næsta tímabili.

Meistaraflokkur Álftanes sigraði 4. deildina í sumar og spila því í 3. deild á næsta tímabili.

Canon

Mynd: Álftanes

Knattspyrnudeild Álftanes leitar að þjálfara fyrir 4 .flokk drengja. Álftanes er með metnaðarfullt starf í knattspyrnudeildinni og er mikill meðbyr með deildinni og félaginu. Knattspyrnudeildin hefur verið að stækka starfið jafnt og þétt og hefur verið töluverð fjölgun í yngri flokkum félagsins í heild, sérstaklega í yngstu flokkunum.

Knattspyrnudeildin byrjaði með 4. flokk drengja í sumar og gekk það verkefni vel, þrátt fyrir að allir iðkendur flokksins hafi verið á yngra ári.

Nú eru að koma upp öflugir drengir úr 5. flokki og strákarnir á eldra ári eru reynslunni ríkari eftir sumarið og því spennandi tímabil framundan.

Félagið leitar því að öflugum þjálfara fyrir þennan flokk en æfingar eru fjórum sinnum í viku yfir vetrarmánuði og er æft þrisvar sinnum á gervigrasinu við íþróttamiðstöðina og einu sinni í viku í Miðgarði.

Félagið útvegar aðstoðarþjálfara.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri félagsins, Ívar Ásgrímsson, s: 8612928, [email protected]

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.